| 40345 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 51 | Eldingar Hætta á eldingum getur skapast við þrumuveður og eldgos. Eldingahætta frá gjósandi eldstöð er mest í gosmekkinum sjálfum og getur náð í allt að 30-40 km undan vindi frá eldstöðinni. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is Fárviðri Það telst fárviðri þegar vindhraði hefur náð 33 m/sek., sem jafngildir 64 hnútum (12 vindstig). Ef Veðurstofa Íslands varar við veðri, skal taka það alvarlega. Sérstaklega ef varað er við miklum vindi, snjókomu, frostregni og/eða ofsakulda. Fylgjast skal með tilkynningum og/eða viðvörunum sem kunna að vera gefnar. Fylgja ber þeim leiðbeiningum almannavarnanefndar sem gilda á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is Jökulhlaup Jökulhlaup stafa ýmist af eldgosum eða jarðhita undir jökli. Stærsta náttúruváin vegna jökulhlaupa hér á landi er vegna eldgoss í Kötlu í Mýrdalsjökli. Vatnamælingar hafa þróað viðvörunarkerfi vegna flóða sem eiga upptök í eldstöðvum og jarðhitakerfum undir jökli. Þegar hlutfall jarðhitavatns í jökulvatni hækkar eykst leiðni. Ef leiðni eða vatnshæð fer yfir fyrir fram ákveðin mörk hringir mælirinn í síma Neyðarlínunnar 112. Neyðarlínan 112 sér um að kalla út vatnamælingamann sem metur ástandið. Fylgja skal leiðbeiningum frá almannavarnarnefnd á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is Flóðbylgjur Flóðbylgjur eru mjög sjaldgæfar hér á landi en þær geta valdið miklu tjóni. Bylgjur geta myndast í kjölfar jarðskjálfta, jökulhlaupa og eldgosa. Einnig getur hrun í landgrunninu eða hrun í sjó fram orsakað flóðbylgjur. Flóðbylgjur hafa valdið skaða t.d. þegar snjóflóð hafa fallið í sjó fram í þröngum fjörðum á Vestfjörðum og Austfjörðum. Fylgja skal leiðbeiningum frá almannavarnanefnd á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is Að öðru leyti varðandi viðbrögð við náttúruvá vísast í sniðmát af viðbragðsáætlun og viðbragðsleiðbeiningar sem unnin voru af vinnuhópi sem skipaður var af Skólameistarafélagi Íslands í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og finna má á heimasíðu Menntamálastofnunar hér: https://mms.is/rafraenar-handbaekur-um-oryggi-og-velferd-barna-i-leik-oggrunnskolum
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=