| 40345 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 48 | Foreldraráð og foreldrafélag Mikilvægt er að foreldrum, foreldraráði og foreldrafélagi sé tilkynnt um stöðu öryggismála í leikskólanum og að foreldraráði sé greint frá alvarlegum atvikum sem upp koma. Eftirlitsskýrslur heilbrigðiseftirlits ættu að vera aðgengilegar fyrir foreldra. Tilkynning á slysi - hvert ber að tilkynna? Mikilvægt er að ákveðin slys sem verða á börnum í leikskóla séu tilkynnt til þeirra aðila er málið varðar. Þau slys sem þarf að tilkynna eru skilgreind í kaflanum Slys á börnum sem gera þarf lögregluskýrslu fyrir. Tilkynning til rekstraraðila Tilkynna á öll slys til rekstraraðila til að tryggja að þeir hafi yfirlit yfir öll meiriháttar slys og geti gert viðeigandi ráðstafanir. Rekstraraðilar bera ábyrgð á því að öryggi barna sé tryggt. Rekstraraðili er auk þess ábyrgur fyrir fjármálum og því er mikilvægt fyrir hann að hafa þessar upplýsingar t.d. þegar hann undirbýr fjárlög. Þetta ætti einnig að hjálpa honum í forgangsröðun viðhalds. Mikilvægt er að verkferlar varðandi tilkynningar til rekstraraðila og þeirra sem hafa eftirlit með húsnæði og leiksvæðum á vegum rekstraraðila séu skýrir þannig að leikskólastjóri viti hvert hann á að tilkynna slys. Verkferlarnir og gerð þeirra er á ábyrgð rekstraraðila. Yfirleitt er ákveðnum starfsmanni í sveitarfélaginu falið eftirlit með starfsemi leikskólans. Ef um einkarekna leikskóla er að ræða eða leikskóla sem starfræktir eru af félagasamtökum er almennt ákveðinn aðili skipaður til að vera í samstarfi við leikskólastjóra um almennan rekstur. Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit viðkomandi sveitarfélags veitir leikskóla starfsleyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Starfsleyfisskilyrðin taka m.a. á öryggi og slysavörnum, húsnæði og búnaði, leikföngum, lóð, leikvallatækjum og leiksvæði, skráningu slysa og reglubundnu innra eftirliti. Sjá nánar Starfsleyfisskilyrði fyrir leikskóla og grunnskóla á vef Umhverfisstofnunar. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga gerir árlega athugun á að kröfum um öryggi sé framfylgt og að reglubundið innra eftirlit hafi farið fram. Ef rekja má slys til vanbúnaðar/bilunar á húsnæði, lóð eða öðrum þáttum sem fram koma í starfsleyfisskilyrðum leikskóla skal tilkynna viðkomandi heilbrigðiseftirliti um slysið. Tilkynningar til tryggingafélaga Mikilvægt er að leikskólastjóri hafi upplýsingar um hvar leikskólinn er tryggður og yfirlit yfir þær tryggingar sem samningar liggja fyrir um. Sérstaklega er það mikilvægt þegar kemur að slysatryggingum barna. Í þeim tilfellum þar sem slys á barni er þess eðlis að gera þarf lögregluskýrslu þarf að tilkynna slysið til viðkomandi tryggingafélags. Um er að ræða þau tilfelli þar sem eftirmál geta orðið vegna slyssins og því er nauðsynlegt að slysatilkynning sé skilvirk til að réttindi barns séu tryggð síðar. Einnig getur þurft að tilkynna til tryggingafélags af öðrum ástæðum. Dæmi: Barn er flutt með sjúkrabíl vegna gruns um fótbrot. Í ljós kemur að barnið hefur tognað og því er ekki um alvarlega áverka að ræða og ekki nauðsynlegt að gera lögregluskýrslu. Nauðsynlegt getur verið í þessu tilfelli að tilkynna atvikið til tryggingarfélagsins vegna tryggingarmála.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=