| 40345 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 46 | Slysaskráningarblaðið er trúnaðarmál og má því ekki afrita né afhenda það öðrum en þeim sem hafa heimild til að skoða það, s.s. heilbrigðiseftirlitinu sem ber að skoða þessi blöð til að kanna fjölda slysa og ástæður þeirra sem hluta af sínu ytra eftirliti. Ef beðið er um skráningarblaðið af öðrum þarf leyfi foreldra. Tilgangur beiðninnar þarf að vera skýr, s.s. ef verið er að vinna rannsóknir. Mikilvægt er að einungis þeir sem uppfylla allar kröfur um rannsóknarheimildir og meðferð persónuupplýsinga fái aðgang að slysaskráningarblöðum í rannsóknarskyni. Hvað er gert við slysaskráningarblöðin? Leikskólastjóri ber ábyrgð á að slysaskráningarblöð séu varðveitt og aðgengileg á meðan barnið dvelur þar. Við útskrift þess skal leikskólastjóri sjá til þess að blaðið fari í varðveislu í skjalasafni sveitarfélagsins eða til þess einstaklings sem varðveitir skjalasöfn einkarekinna leikskóla. Slysaskráningarblöðin þurfa að vera aðgengileg ef foreldrar eða barnið sjálft þurfa á þessum upplýsingum að halda síðar á lífsleiðinni samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn nr. 66/1985. Lögregluskýrsla Ef alvarlegt slys verður í leikskóla eða slys sem veldur barni áverka sem hugsanlega getur tekið sig upp síðar á ævinni er mikilvægt að gera lögregluskýrslu. Lögregluskýrsla greiðir fyrir afgreiðslu hjá tryggingarfélögum. Skýrslan er varðveitt hjá lögreglu. Leikskólastjóri getur óskað eftir afriti af henni ef þörf krefur. Í þeim tilfellum sem hringt er á sjúkrabíl kemur lögregla oftast með. Lögregla biður um ýmsar upplýsingar tengdar slysinu. Það er ekki lögregluskýrsla heldur skýrsla vegna útkalls sjúkrabíls; því þarf að fá lögreglu á staðinn til að gera sérstaka lögregluskýrslu um atvikið eða biðja um að hún sé gerð samhliða skýrslu vegna útkalls sjúkrabíls. Leikskólastjóri ber ábyrgð á að lögregluskýrsla sé gerð. Hægt er að óska eftir því að hún sé gerð eftir á. Til að hægt sé að meta hvenær á að gera lögregluskýrslu þarf oft að bíða eftir að læknisskoðun hafi farið fram. Ef gerð er lögregluskýrsla á að upplýsa foreldra og rekstraraðila um það. Slys á börnum sem gera skal lögregluskýrslu um: • Öll alvarleg slys, t.d. áverkar á innri líffærum, drukknun, umferðarslys. • Höfuðhögg. Heilahristingur, brot, umtalsverð blæðing, bjúgur eða annar alvarlegur áverki. • Brunaslys. Ef meira en 8-10% af líkamanum eru brennd og sár eru djúp. • Öll beinbrot. Sama hversu lítil þau virðast vera. Komi í ljós að grunur um beinbrot er ekki réttur og barnið hefur aðeins tognað illa er óþarfi að gera lögregluskýrslu. • Tannáverkar. Alla áverka á tönnum þar sem staðfest er eða grunur er um að fullorðinstennur hafi skaddast. • Augnáverkar. Allir alvarlegir augnáverkar, t.d. skert sjón. • Klemmuáverkar. T.d. fingur fer af eða hangir á húðpjötlu.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=