Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

| 40345 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 41 | Að hefja skyndihjálp og sinna barni þar til sjúkrabíll kemur Starfsfólk leikskóla hefur ekki heimild til að meðhöndla áverka; slíkt er í höndum lækna og hjúkrunarfræðinga og þeirra sem öðlast hafa til þess sérstakt leyfi. Hlutverk starfsfólks leikskóla, þegar slys ber að höndum, er að greina, koma í veg fyrir frekara líkamlegt tjón og koma barni til læknis, en það er skilgreint sem skyndihjálp. Á vefsíðunni skyndihjalp.is sem er á vegum Rauða kross Íslands má finna stuttar og hagnýtar leiðbeiningar fyrir almenning um hvernig bregðast megi við ýmsum slysum og veikindum. Mikilvægt er að starfsfólk leikskóla sæki sérhæft námskeið fyrir starfsfólk á leikskóla í skyndihjálp. Hafa ber í huga að: • Skyndihjálp er veitt út frá mati á ástandi barnsins og því haldið áfram þangað til sjúkrabíllinn er kominn. • Í þeim tilfellum þar sem viðkomandi ræður ekki einn við að veita skyndihjálp óskar hann eftir aðstoð nærstaddra. • Þegar enginn er til aðstoðar verður viðkomandi að reyna sitt besta og bíða rólegur þangað til sjúkrabíllinn kemur. Að koma ró á svæðið – hinn slasaði gengur alltaf fyrir Þegar alvarlegt slys verður í leikskóla eða í ferðum á vegum hans er ekki óeðlilegt að það myndist ringulreið meðal starfsfólks og barna. Til að draga úr líkum á að slíkt ástand skapist er mikilvægt að leikskólar hafi virka viðbragðsáætlun og æfi hana reglulega. Fullorðið fólk ber ábyrgð og verður eftir fremsta megni að halda ró sinni til þess að ná stjórn á aðstæðum og koma í veg fyrir frekari skaða, og að börnin finni fyrir öryggi, s.s. að þau finni að fullorðna fólkið taki ábyrgðina og viti hvað það er að gera. Fyrstur á slysstað Mikilvægt er að sá sem kemur fyrstur á slysstað taki yfir stjórnina hafi hann lokið námskeiði í skyndihjálp; ef svo er ekki kallar hann til næsta yfirmann. Auk þess þarf hann að: • Meta ástand þess slasaða út frá sinni kunnáttu í skyndihjálp. • Afla upplýsinga frá hinum slasaða eða vitnum. • Meta hvort hringja á í Neyðarlínu 112. • Veita skyndihjálp. • Meta hvort þörf er á aðstoð annarra starfsmanna. • Fjögur skref skyndihjálpar • Tryggja öryggi og koma þannig í veg fyrir frekara slys. • Meta ástand hins slasaða til að greina hvort um lífshættulegt ástand er að ræða eða ekki. Aðstæður á vettvangi og umkvartanir slasaðra gefa strax góða mynd af ástandinu. • Kalla til hjálp, hringja í Neyðarlínuna 112 . • Veita viðeigandi skyndihjálp á rólegan og yfirvegaðan hátt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=