| 40345 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 37 | Eftirfarandi atriði þyrfti að skoða: • Hálka: Kanna þarf hvort mikil hálka er á lóð og göngustígum innan lóðar. Ef svo er skal gera viðeigandi ráðstafanir, s.s. að salta þá fleti sem eru hálir. Mikilvægt er að kanna hálku á yfirborði leiktækja. Ef ísing er úti er ekki ólíklegt að þau séu hál. Meta þarf hvort hindra þurfi aðgang barna að hálum leiktækjum því þau geta verið hættuleg og skapað fallhættu. Athugið að geyma skal hálkusalt þar sem börn ná ekki til, þar sem það er mjög eitrað. • Lýsing: Kanna ber hvort unnin hafa verið skemmdarverk á lýsingu lóðar eða hvort perur hafa bilað. Ef svo er þarf að tilkynna það strax til viðkomandi aðila sem sér um viðhald lóða. • Rusl: Mikilvægt er að allt rusl sé fjarlægt. Sprautur og nálar sem finnast ber að fjarlægja samkvæmt og hér er að finna góð ráð varðandi um meðferð á notuðum sprautum og nálum. • Eiturefni hafa fundist á lóðum, svo sem pillur og duft, sem er oft komið fyrir í sandkössum. Þegar starfsmaður fer yfir lóðina til að skoða hana þarf hann að skoða sandkassann sérstaklega vel. Mikilvægt er að raka sandinn til að kanna að ekkert hafi grafist niður í hann. Gæta skal þess sérstaklega vel að nikótínpúðar séu ekki á lóðinni eða grafnir niður í sandinn í sandkassanum eða á malarsvæðum og blómabeðum á lóðinni. Þar sem starfsmenn eru að fara út á lóðina í skammdeginu getur verið erfitt fyrir þá að sjá nikótínpúða; því þurfa starfsmenn að vera á varðbergi þegar þeir eru með börnin úti á lóðinni í gæslu. • Tína skal tafarlaust upp nikótínpúða og henda þeim til að koma í veg fyrir alvarlegar eitranir af þeirra völdum. Sama gildir um sígarettustubba. Í kringum áramót skal gæta sérstaklega að notuðum skoteldum og skulu þeir fjarlægðir strax. Sama gildir um notaða kveikjara. • Leiktæki: Skoða þarf leiktæki til að kanna hvort þau eru brotin eða skemmd. Ef skemmdarverk hafa verið unnin á þeim er mikilvægt að það sé tilkynnt strax til viðeigandi aðila sem sér um viðgerð á leiktækjum. Ef ekki tekst að lagfæra tækin þarf að girða þau af þannig að börn komist ekki að þeim. Ef bönd eða snúrur hafa verið bundin í leiktæki skal fjarlægja þau tafarlaust. Börn hafa slasast lífshættulega þegar þau hafa næstum verið búin að hengja sig í þeim eða hljóta aðra alvarlega áverka. • Undirlag: Skoða þarf undirlag undir tækjum. Ef möl er notuð sem fallundirlag skal kanna hvort borist hafi grjót, timbur eða annað í mölina og fjarlægja það strax sé þess þörf, annars virkar öryggisundirlagið ekki ef barn fellur úr tækinu. Þar sem möl er notuð sem öryggisundirlag myndast oft hola, t.d. undir rólum. Til að öryggisundirlagið virki þarf að raka mölina reglulega. • Gangstéttir: Sópa þarf gangstéttir. Laus möl sem berst upp á gangstéttir er hættuleg og getur valdið slysum hjá börnum, foreldrum og starfsfólki. • Vatnssöfnun: Kanna þarf hvort vatn hafi safnast fyrir á lóðinni. Ef rekja má vatnssöfnun til stíflaðs niðurfalls skal tilkynna það til þeirra sem sjá um viðhald á lóðinni og girða svæðið af þar til búið er að laga niðurfallið. Gæta þarf þess að börn séu aldrei ein að leik við polla. Börn undir fjögurra ára geta drukknað í 2-5 cm djúpum polli. Það tekur barn einungis eina og hálfa mínútu að drukkna við slíkar aðstæður.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=