Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

53 Foreldrar Nám og námsaðstoð Nafn grunnskóla algjörlega sammála sammála hvorki né ósammála algjörlega ósammála veit ekki Kennsluhættir miðast við að komið sé til móts við þarfir hvers og eins nemanda. Fjölbreytni í námi stuðlar að andlegri og líkamlegri styrkingu nemenda. Jafnræði er með kennslugreinum; t.d. er list- og verkgreinum gert jafn hátt undir höfði og bóklegum greinum. Námsaðstoð er miðuð við að allir geti stundað nám á eigin forsendum. Markvisst er unnið að því að efla sterkar hliðar nemenda til að auka vellíðan þeirra og hæfni til að takast á við ný verkefni. Aðstoð í bekk er miðuð við að koma til móts við þarfir hvers og eins. Sérkennsla er nægjanleg til að fullnægja ákvæðum um aðstoð vegna sérþarfa nemenda. Námsaðgengi er jafnt fyrir fatlaða sem ófatlaða. Nemendum eru tryggð námstækifæri í samræmi við ákvæði námskrár. Tekið er fullt tillit til þeirra nemenda sem vegna tungumáls, þjóðernis eða menningar eru frávik í námshópi. Í skólanum er aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum. Foreldrar eru virkir í samstarfi við skólann í að vinna gegn einelti. Foreldrum eru kynnt helstu atriði eineltisáætlunarinnar. Foreldrum eru kynntar niðurstöður kannana um einelti í skólanum. Foreldrar hafa komið að mótun jákvæðs skólabrags.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=