Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

51 10.7 Tillaga að spurningalistum um viðhorf, líðan og aðstæður nemenda Upplýsingar sem fást með spurningalistum geta aukið skilning á aðstæðum nemenda og bætt viðhorf. Kennarar Nám og námsaðstoð Nafn grunnskóla algjörlega sammála sammála hvorki né ósammála algjörlega ósammála Kennsluhættir miðast við að komið sé til móts við þarfir hvers og eins nemanda. Fjölbreytni í námi stuðlar að andlegri, félagslegri og líkamlegri styrkingu nemenda. Jafnræði er með kennslugreinum; t.d. er list- og verkgreinum gert jafn hátt undir höfði og bóklegum greinum. Námsaðstoð er miðuð við að allir geti stundað nám á eigin forsendum. Markvisst er unnið að því að efla sterkar hliðar nemenda til að auka vellíðan þeirra og hæfni til að takast á við ný verkefni. Aðstoð í bekk er miðuð við að koma til móts við þarfir hvers og eins. Sérkennsla er nægjanleg til að fullnægja ákvæðum um aðstoð og vegna sérþarfa nemenda. Námsaðgengi er jafnt fyrir fatlaða sem ófatlaða. Nemendum eru tryggð námstækifæri í samræmi við ákvæði námskrár. Tekið er fullt tillit til þeirra nemenda sem vegna máls, þjóðernis eða menningar eru frávik í námshópi.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=