Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

38 Símtalið • Sá sem hringir kynnir sig með nafni og segir hvaðan er hringt • Sá sem hringir á að vera rólegur og tala skýrt. • Segja skal í stuttu máli frá því sem kom fyrir barnið og reynt að koma því strax til skila hvað sé að. Mikilvægt er að tala varlega. • Ef hringt hefur verið á sjúkrabíl er endað á að segja frá því og látið vita hvaða starfsmaður fór með barninu á sjúkrahús/heilsugæslu og hvert var farið. Lífshættulegt ástand Mikilvægt er að öll sveitarfélög setji sér verklagsreglur um tilkynningu til foreldra vegna alvarlegra og lífshættulegra slysa á börnum. Tillaga að verklagsreglum sveitarfélaga er í viðauka. Skólastjórum ber að kynna sér þær verklagsreglur sem gilda í sveitarfélaginu. Ef ástand barnsins er lífshættulegt (barnið er í hjarta- og öndunarstoppi eða meðvitundarlaust) þarf að vinna samkvæmt verklagsreglum í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Æskilegt er að tilkynning til foreldra komi frá áfallateymi slysadeildar eða sambærilegu teymi á hverju svæði fyrir sig. 8.9 Eftir slys Eftir að slys hefur átt sér stað er mikilvægt að fara yfir skráningar á slysinu og öryggisatriði skólans. Skráning slysa í skólum Mikilvægt er að öll slys sem verða á börnum í skólum séu skráð á tiltekið slysaskráningarblað. Skráning slysa er mikilvægur hluti af innra og ytra eftirliti í skólans. Skólastjóri tekur saman í lok hvers árs hvar, hvenær og hvernig slys hafa átt sér stað og skoðar t.d. hvar hættur er að finna eða hvort eftirlit starfsfólks með börnum sé fullnægjandi. Sveitarfélög ættu að taka saman yfirlit yfir slys í skólum árlega. Hvenær á að skrá slys í skóla? Öll slys þar sem barn hefur hlotið það mikinn áverka að það þarfnast meðferðar hjá tannlækni, slysadeild, sjúkrahúsi, heilsugæslustöð eða hjá sérfræðingi, ber að skrá á slysaskráningarblað. Ekki er ástæða til að skrá alla áverka. Minniháttar áverka þar sem ekki er hætta á frekari afleiðingum ber ekki að skrá eins og kúlu á enni, skrámur, grunnt klór og skolun á sandi úr auga. Í þeim tilfellum þar sem skólastjóri óskar eftir því að slys sé skráð skal það gert. Að hverju þarf að gæta þegar skráð er? Mikilvægt er að við skráningu á slysaskráningarblaðið komi fram hver var endanlegur meðferðaraðili og hver áverkagreining var. Slysaskráningarblað þar sem þessar upplýsingar vantar er ekki fullgilt. Ef ekki er hægt að skrá það strax verður að bíða eftir að foreldri láti vita hver/hverjir meðferðaraðilar voru og hver endanleg sjúkdómsgreining var. Skólastjóri ber ábyrgð á verklagi um frágang þessara blaða og tryggir að þeim sé framfylgt.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=