Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

37 Mikilvægt er að sá sem hringir í 112 gefi þeim sem svarar yfirlit yfir ástandið á fyrstu 30 sekúndum samtalsins en það eru H-in þrjú: • H - HVAR VARÐ SLYSIÐ? NAFN SKÓLANS, HEIMILISFANG OG NÁKVÆMARI STAÐSETNING Á BARNI (mikilvægt er að taka fram ef barnið er úti á lóð og þá hvar, sérstaklega þar sem lóðir eru stórar). • H - HVER ER ÞAÐ SEM HRINGIR? Kynna sig með fullu nafni og taka strax fram að verið sé að hringja úr skóla. • H-HVAÐ KOM FYRIR? ALDUR OG KYN, HVER ER LÍÐAN VIÐKOMANDI (dæmi: Hinn slasaði heitir Jón Jónsson og er 10 ára, hann féll úr rólu og er mögulega fótbrotinn). 8.7 Viðbrögð gagnvart vitnum og öðrum börnum á slysstað Mikilvægt er að færa áhorfendur (börn) af svæðinu sem fyrst þannig að þeir þurfi ekki að horfa upp á hinn slasaða. Starfsfólk kannar hvaða börn urðu vitni að slysinu. Það þarf að tala sérstaklega við þau í rólegu umhverfi og útskýra fyrir þeim á einfaldan hátt eftir þroska hvað gerðist, hvert var farið með þann slasaða (ef við á) og hvernig það fór. Útskýra þarf fyrir öllum börnum skólans hvað gerðist. Mikilvægt er að öll börn fái réttar upplýsingar hjá þeim fullorðnu eins fljótt og unnt er til að draga úr mögulegri hræðslu þeirra. • Huga þarf að líðan þeirra barna sem verða vitni að slysi eða ofbeldi. Í þeim tilfellum þar sem um lífshættulega áverka er að ræða og tvísýnt er um útkomu hjá slasaða barninu er mikilvægt að kalla til aðila sem veitt getur áfallahjálp. Þetta er sérstaklega mikilvægt í þeim tilfellum þar sem börn látast. • Ef slasaða barnið er fjarverandi í einhvern tíma er mikilvægt að leyfa félögum þess í skólanum að fylgjast með framvindu mála. Það er einnig mikilvægt fyrir hið slasaða barn að vera í samskiptum við skólann sinn og félaga. • Þegar kallaður hefur verið til sjúkrabíll og lögregla getur það valdið ótta hjá börnum. Ef því verður við komið er æskilegt að lögreglan komi inn í skólastofu til barnanna og ræði við þau (sérstaklega í bekk barnsins sem slasaðist). • Mikilvægt er að láta foreldra vita áður en börnin fara heim úr skólanum að kalla hafi þurft til sjúkrabíl og skýra frá helstu staðreyndum. Þetta á sérstaklega við um foreldra í þeim bekk sem slasaða barnið tilheyrir en getur einnig átt við um aðra foreldra skólans eftir aðstæðum hverju sinni. Börn vilja gjarnan tala um það sem þau hafa upplifað og því mikilvægt að foreldrar hafi réttar upplýsingar til að geta rætt við börn sín og hjálpað þeim að jafna sig á því sem þau reyndu. 8.8 Tilkynning til foreldra um slys á barni Mikilvægt er að skólar setji sér verklagsreglur um hvernig foreldrum er tilkynnt um slys á barni. Slys sem ekki eru talin lífshættuleg • Öll slys sem ekki eru talin lífshættuleg, t.d. beinbrot og skurðir, tilkynnir starfsfólk foreldrum. Æskilegt er að umsjónarkennari barnsins eða skólastjóri sjái um að hringja í foreldra. • Mikilvægt er að sá starfsmaður sem hringir viti nákvæmlega um ástand barnsins og hver viðbrögð skólans voru, til dæmis hvort hringt hefur verið á sjúkrabíl eða leitað ráða hjá heilsugæslu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=