Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

33 7 Öryggi í skólaferðalögum Skólar þurfa að móta sér skýrt verklag um undirbúning og framkvæmd ferða utan skólans. Tryggja þarf öryggi nemenda í ferðum á vegum skóla þar sem meðal annars er hugað að fjölda barna og starfsmanna. Vinna þarf að skipulagningu ferða í góðu samstarfi við foreldra þannig að þeir viti t.d. hvert förinni er heitið, dagskrá og tilgang ferðarinnar og hvaða búnað börnin þurfa að hafa meðferðis. Foreldrar bera ábyrgð á að börnin séu klædd eftir veðri og aðstæðum. Gott verklag er að óska samþykkis foreldra fyrir þátttöku barna í ferðum á vegum skólans. Starfsmaður ætti aldrei að vera einn með börn í slíkum ferðum. Þegar ferðir eru skipulagðar þarf að gæta þess að ekki sé farið með börn á staði sem þau ráða illa við sökum aldurs eða þroska svo sem fjallgöngur eða á svæði sem þau eiga mjög erfitt með að fara um eða hættur gætu leynst á. Mikilvægt er að tryggja að börn verði aldrei viðskila við starfsfólk skóla í ferðum. Æskilegt er að starfsmenn hafi gsm síma með í ferðalögum á vegum skóla. Tillaga að skipulagi við undirbúning ferða á vegum skóla er í viðauka. 7.1 Strætisvagna- og rútuferðir Kaflinn um „Öryggi í skólaferðalögum“ gildir um strætisvagna- og rútuferðir. Tryggja þarf að í bifreiðinni sé viðeigandi öryggisbúnaður. Mikilvægt er að tryggt sé eitt sæti fyrir hvert barn þannig að öll börn geti notað viðeigandi öryggisbúnað eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Í reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum, nr. 348/2007 er að finna allar upplýsingar um hvernig tryggja skuli börnum öryggi í ökutækjum. Ef um skólaakstur er að ræða gilda sömu reglur. Einnig gilda reglur um skólaakstur í grunnskóla, nr. 656/2009. Tillaga að verklagi við strætisvagnaferðir er í viðauka. 7.2 Bátsferðir Kaflinn um „Öryggi í skólaferðalögum“ gildir einnig í bátsferðum. Skipuleggja þarf bátsferðir tímanlega og kanna hvort viðkomandi bátur hafi leyfi til fólksflutnin en slíkir bátar og skip þurfa að hafa viðeigandi öryggisbúnað og skráðan hámarksfjölda farþega. Afla þarf samþykkis foreldra fyrir slíkum ferðum. Þegar farið er um borð eða frá borði er æskilegt að fylgja tillögum um verklag við strætisvagnaferðir. Við komu um borð í skipið eða bátinn skal sá sem er ábyrgðarmaður í ferðinni kynna sér hvar björgunarbúnað er að finna og kanna rýmingaráætlun.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=