Handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum

31 6 Eftirlit Eftirlit með leikvallatækjum og leiksvæðum skal vera í samræmi við kröfur samkvæmt staðlaröðinni ÍST EN 1176 ásamt ÍST EN 1177 sem taldir eru upp í viðauka I með reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, nr. 942/2002. Neytendastofa hefur eftirlit með því að leikvallatæki á markaði uppfylli settar reglur um öryggi. Um málsmeðferð og réttarfarsúrræði fer eftir ákvæðum laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með því að farið sé að ákvæðum laga varðandi leikvallatæki í notkun og öryggi leiksvæða. Tíðni þess eftirlits er háð mati eftirlitsaðila og við slíkt mat skal tekið tillit til umfangs og innra eftirlits þess leiksvæðis sem um ræðir. Heilbrigðisfulltrúi skal hafa aðgang að öllu skráðu og skjalfestu efni er eftirlitið varðar. 6.1 Innra eftirlit Í reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, nr. 94/2002 segir að: • Í starfsleyfi skal heilbrigðisnefnd gera kröfu um innra eftirlit á leiksvæðum og með leikvallatækjum. • Innra eftirlitið skal vera samkvæmt ákvæðum staðalsins ÍST EN 1176. • Innra eftirlit skal framkvæma samkvæmt gátlista og í því skal vera slysaskráning. Í innra eftirlitinu skal tilgreina til hvaða úrbóta skal grípa þegar frávik verða frá ákvæðum reglugerðarinnar og hvenær úrbótum var lokið. • Mælt er með að innra eftirlit sé hluti af gæðahandbók. • Innra eftirlit greinist í reglubundna yfirlitsskoðun, rekstrarskoðun og aðalskoðun, sbr. ákvæði í viðauka III í reglugerðinni. • Aðalskoðun skal framkvæmd af hæfum aðila samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda leikvallatækja. Rekstraraðili ber ábyrgð á innra eftirliti. Með hverjum eftirlitsþætti innra eftirlits ætti að vera ábyrgðaraðili sem gerir rekstraraðila viðvart um það sem aflaga fer og bendir á nauðsynlegar úrbætur. Rekstraraðili gerir nauðsynlegar úrbætur eða tekur leikvallatæki úr notkun. Eftirlit starfsmanna Í reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim nr. 94/2002 segir að reglubundna yfirlitsskoðun geti þurft að framkvæma daglega í skólum allt eftir notkun og álagi á leiksvæðinu. Tilgangur hennar er að greina strax þær hættur sem geta stafað af skemmdarverkum, notkun, sliti eða veðrun. Dæmi um þetta er hættulegt rusl, skemmd leikvallatæki, lausar festingar leikvallatækja og marka, slitnir hreyfihlutir, flísar, útistandandi naglar og skrúfur og óvarðar undirstöður.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=