| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 27 | • Haga skal frágangi á grindverki á lóð skólans þannig að börnum stafi ekki hætta af. • Við framkvæmdir og viðhald leiksvæða skal taka tillit til eðlis starfseminnar. Umferð vélknúinna farartækja er bönnuð á leiksvæðum utan þess sem nauðsyn krefur, svo sem vegna viðhalds eða endurnýjunar tækja og búnaðar. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar er öryggisvísir leiksvæða sem gagnlegt er fyrir skólastjóra og rekstraraðila að kynna sér. Starfsmenn Meta þarf hverju sinni hversu margir starfsmenn þurfa að vera til staðar í frímínútum og ferðum á vegum skólans. Ef starfsfólk á útivakt í frímínútum þarf að bregða sér frá er mikilvægt að annað starfsfólk sé látið vita. Lýsing Í kringum skóla og á öllum leiðum að skóla, hvort heldur er frá bílastæði, gönguleið eða hjólastígum, þarf lýsing að vera jöfn, heildstæð og kröftug en ekki blindandi. Lýsing þarf að taka mið af öllum notendum. Æskilegt er að birta á umferðarleiðum milli bygginga og lóða sé nægjanleg til að allir aldurshópar geti athafnað sig óhindrað og af fullu öryggi. Þar sem gert er ráð fyrir umgengni almennings ætti að taka tillit til heildaráhrifa þannig að tryggt sé að hvergi verði staðbundin, ófullnægjandi birtuskilyrði sem skapað geti slysahættu. Skipta þarf strax um perur og lagfæra ljós sem bila. Ruslaskýli, tunnur og gámar Huga ber að því að ruslaskýli, tunnur og gámar sem eru staðsett upp við skólabyggingar geta haft ákveðna hættu í för með sér, svo sem brunahættu vegna íkveikju í rusli og fallhættu ef börn nota það sem tröppur til að komast upp á byggingar. Hjólastandar Mikilvægt er að við grunnskóla séu hjólastandar þannig að börn geti gengið frá hjólum sínum á öruggan hátt. Hjólastandar þurfa að vera staðsettir þar sem ekki er hætta á að fólk falli um þá, helst nokkra metra frá inngangi. Mikilvægt er að merkja svæðið í kringum þá þannig að sjónskertir einstaklingar sjái þá. Notkun reiðhjólahjálma Börn yngri en 16 ára skulu nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar samkvæmt umferðarlögum 2019/77. Börn eiga þó einungis að nota hjálm á hjóli, ekki þegar þau eru að leika sér í öðru. Í umferðarlögunum er nú sérstaklega kveðið á um það að umferðarfræðsla skuli fara fram í grunnskólum. Umferðarlög Umferðarfræðsla Samgöngustofu
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=