40344_velferd_barna_grunnsk_handb

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 15 | Fræðsla starfsmanna um öryggismál Öryggi nemenda í skólum ætti að vera forgangsmál. Það er því mikilvægt að allir starfsmenn fái þjálfun í öryggismálum. Mikilvægt er að þjálfun í öryggismálum byrji um leið og starfsmenn taka til starfa og að því sé fylgt eftir að þeir öðlist færni í öryggismálum. Meðal þess sem þarf að hafa í huga fyrir alla starfsmenn: • Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp annað hvert ár til að starfsmenn geti endurnýjað skyndihjálparréttindi sín • Árleg könnun á kunnáttu og þekkingu starfsmanna í öryggismálum og viðbrögðum skólans við slysum, bruna og annarri vá • Regluleg þjálfun starfsmanna í viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans • Starfsmenn kynni sér hvar sjúkrakassinn er geymdur og þekki innihald hans Fyrir nýja starfsmenn þarf sérstaklega að huga að: • Kynningu á viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans • Kynningu á staðsetningu sjúkrakassa og öryggisupplýsinga • Sérhæfðu námskeiði í slysavörnum og skyndihjálp eins fljótt og auðið er Öryggisferlar og viðbragðsáætlanir Skriflegir og virkir öryggisferlar eiga að vera í öllum grunnskólum og upplýsingar þurfa að vera á áberandi stað/stöðum. Mikilvægt er að slíkt svæði sé tilgreint sem neyðarstöð. Allt starfsfólk á að kunna öryggisferla skólans og hafa auðveldan aðgang að skriflegum upplýsingum um þá. Kynna þarf verkferla viðbragðsáætlana fyrir nýju starfsfólki og afleysingastarfsfólki á fyrstu starfsdögum þess í skólanum. Hlutverk og ábyrgð Skilgreina skal ábyrgð starfsmanna í starfslýsingu og hlutverk þeirra í viðbragðsáætlun. Allt starfsfólk á að vita hvert hlutverk þess er ef upp kemur neyðarástand. Stjórnendur öryggismála á vinnustað eiga að tryggja öryggi nemenda, sjálfra sín og starfsfólks og að unnið sé eftir viðbragðsáætlunum og gerð áhættumats. Áhættumat er áhrifarík aðferð við að tryggja hámarksöryggi nemenda í skólum. Áhættumat ætti að byggja á skráningu skóla á ofbeldisatvikum og slysum þar sem áverkar við slys eru flokkaðir á grundvelli alvarleika. Með því móti verður matið faglegt og hægt að fyrirbyggja að alvarlegir atburðir endurtaki sig. Reglubundnar æfingar á öryggisferlum Mikilvægt er að viðbrögð við ólíkum aðstæðum, svo sem alvarlegum slysum, eldi eða náttúruvá, séu æfð reglulega. Með því að æfa mismunandi viðbragðsáætlanir reglulega verður þekking og færni starfsfólks meiri og betri. Það eykur líkur á að unnt sé að bregðast fumlaust við mismunandi aðstæðum. Mikilvægt er að skólastjóri feli einum starfsmanni að fylgjast með æfingunni og skrá niður hvernig gengur, þannig að ef upp koma vandamál sé til skráning að æfingu lokinni sem farið er

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=