40344_velferd_barna_grunnsk_handb

Handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 2 | Handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum ISBN 978-9979-0-2970-0 © 2014 Mennta- og menningarmálaráðuneytið 1. útgáfa ágúst 2014 2. útgáfa október 2024 Uppfærð ágúst 2015 Uppfærð mars 2018 Uppfærð janúar 2020 Uppfærð maí 2021 Uppfærð og endurskoðuð 2024 Útgefandi : Mennta- og barnamálaráðuneytið Umsjón : Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Hönnun og umbrot: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Kynning á handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum . . . . . . . . . . 3 1. Velferð barna og ungmenna . . . . . . . . . . 5 2. Rafrænt öryggi grunnskólabarna . . . . . . . 13 3. Slysavarnir og líkamlegt öryggi . . . . . . . . 14 4. Öryggi í námsumhverfi . . . . . . . . . . . . 21 5. Eftirlit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30 6. Öryggi í skólaferðalögum . . . . . . . . . . . 32 7. Slys . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 34 8. Almannavarnir og viðbrögð við eldvörnum . . . 42 og náttúruvá . . . . . . . . . . . . . . . . 42 9. Viðaukar . . . . . . . . . . . . . . . . . . 45 10. Lög, reglugerðir, námskrár og fleira sem gildir um grunnskóla . . . . . . . . . . 66 Efnisyfirlit

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 3 | Kynning á handbók um öryggi og velferð barna í grunnskólum Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga með hliðsjón af reglugerð um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða nr. 657/2009. Í reglugerðinni segir að sveitarstjórn skuli útbúa handbók fyrir starfsfólk grunnskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi barna og slysavarnir í grunnskólum. Leiðbeiningar þessar skulu grundvallaðar á gildandi lögum og reglugerðum um öryggis-, skipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir grunnskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Leiðbeiningar þessar skulu staðfestar af sveitarstjórn, sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningi á heimasíðu skólans eða sveitarfélagsins eða með öðrum hætti og kynntar í skólasamfélaginu. Sambandi íslenskra sveitarfélaga og mennta- og menningarmálaráðuneyti ber að móta leiðbeiningar um gerð slíkrar handbókar. Handbókin er mun ítarlegri en reglugerðin segir til um og er það gert til að auðvelda sveitarstjórnum að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í grunnskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir grunnskóla. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk grunnskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari. Handbókin tekur ekki til sértækra öryggismála vegna barna með bráðaofnæmi, líkamlega eða andlega sjúkdóma eða fötlun, þar sem fyrir hvert slíkt barn gæti þurft að gera sértækar ráðstafanir. Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem uppflettirit til að auðvelda notendum að fylgja eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda um grunnskólann og umhverfi hans. Uppsetningu handbókarinnar er ætlað að auðvelda notendum að finna upplýsingar um mismunandi þætti öryggismála. Markmiðið með handbókinni er að setja fram á aðgengilegan hátt upplýsingar um öll öryggisatriði sem huga þarf að í daglegum rekstri og starfi grunnskóla. Handbókinni er skipt í 10 meginkafla en hverjum meginkafla síðan skipt í undirkafla til að auðvelda leit að sértækum þáttum. Meginkaflar handbókarinnar eru: • Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um grunnskóla • Velferð barna og ungmenna • Netöryggi • Slysavarnir og líkamlegt öryggi • Öryggi í námsumhverfi • Eftirlit • Öryggi í ferðum á vegum grunnskóla • Slys

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 4 | • Almannavarnir og viðbrögð við eldvörnum og náttúruvá • Áhugavert lesefni og viðaukar Handbókinni er ætlað að vera rammi um sameiginlega vinnu allra í skólasamfélaginu að velferð nemenda og byggir á efni sem Herdís Storgaard og Þorlákur Helgason unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið árið 2014. Ráðuneytið hefur falið Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að fara með umsjón, vistun og uppfærslu handbókanna fyrir leikskóla og grunnskóla. Aðrir haghafar sem komið hafa að endurskoðun og uppfærslu 2024 eru Samgöngustofa, Samband íslenskra sveitarfélaga og Landlæknisembættið.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 5 | 1. Velferð barna og ungmenna Skólinn er griðastaður barnanna og mikil ábyrgð hvílir á starfsfólki að hlúa að börnum og veita þeim öryggi í daglegu starfi. Velferð allra er sameiginlegt verkefni en félagsleg staða nemenda og starfsmanna er ólík. Það er mikilvægt að nemandi njóti bernsku sinnar og eigi góðar minningar úr skóla. Þegar fjallað er um velferð nemenda er horft til þriggja þátta, þeir eru: • Félagslegt öryggi nemenda og að þeir séu metnir út frá eigin verðleikum • Tilfinningalegt öryggi nemenda sem finna væntumþykju annarra • Traust þar sem nemendur átta sig á að þeir geti treyst þeim sem eru að mennta þá Á Íslandi er skólaskylda samkvæmt 15. gr. grunnskólalaga frá 6 ára aldri. Samkvæmt þeim eiga öll börn á aldrinum 6–16 ára að vera í grunnskóla og því er mikilvægt að umhverfi og aðstæður í skólanum tryggi farsæld barna og að þau geti þar dafnað í daglegu lífi og leik. • Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst (Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands). Meðal markmiða laga og reglugerða um skólahald er að tryggja að nemendum líði vel. Mikilvægt er að þeir búi við öryggi og að gagnkvæmt traust ríki í skólasamfélaginu. Sýn skólans á velferð og farsæld nemenda Bernsku- og unglingsárin eru mikilvægt skeið í ævi hvers einstaklings og eiga skólar að leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir barna og unglinga. Skólastarfið miðar að virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi innan skóla sem utan. Í lögum um leik- og grunnskóla eru skýrar áherslur á öryggi og velferð og hvatt er til góðs og farsæls samstarfs allra sem að skólasamfélaginu koma. Allir geta verið sammála um að nemendur eigi rétt á að eiga góðar minningar úr skóla, hvort heldur er úr námi, félagslífi eða tilfinningalega. Barn sem líður vel í skóla, á góða vini og getur tekið beinan þátt í að móta góðan skóla er líklegra til að ná árangri í skóla og það hefur áhrif á skólabrag. Góður árangur barns í skóla hefur einnig áhrif á heilsufar þess. Barn sem býr við tilfinningalegt og félagslegt öryggi í skóla er líklegt til að geta metið stöðu sína og náð árangri á eigin forsendum. Samkvæmt reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 skulu skólar vinna sameiginlega sýn og stefnu um velferð og birta í skólanámskrá. Mikilvægt er að hvort tveggja sé skilgreint, unnið sé að því að styrkja ímynd skólans og skapa sameiginlegan skilning meðal starfsmanna, nemenda, foreldra og grenndarsamfélagsins. Í skólasamfélaginu er lögð rækt við að vinna að almennri velferð nemenda og gegn andfélagslegri hegðun í hverju svo sem hún kann að birtast, svo sem einelti, öðru ofbeldi og niðurlægingu. Næst á eftir heimili barnsins er skólinn mikilvægasta umhverfi þess og þar mótast meðal annars félags- og tilfinningaþroski að hluta. Því er mikilvægt að skólar móti sér sýn á velferð og birti hana í skólanámskrá sinni.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 6 | Hér að neðan eru talin upp nokkur atriði sem vert er að hafa til hliðsjónar við mótun heildarsýnar skóla á velferð nemenda: • Markmið um aukna velferð nemenda er samvinnuverkefni skóla og heimilis • Skólinn skilgreini í hverju jákvæður skólabragur felst og móti leiðir til að viðhalda honum. Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar skulu í sameiningu leggja áherslu á að móta og viðhalda góðum starfsanda í skólanum og jákvæðum skólabrag. • Leggja skal áherslu á styrkleika barna og hæfni. Leitast skal við að vinna að fjölbreyttum viðfangsefnum og starfsháttum til að koma til móts við mismunandi námsþarfir ólíkra einstaklinga og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. • Helstu þættir heilbrigðis sem leggja þarf áherslu á eru: jákvæð sjálfsmynd, hreyfing, næring, hvíld, andleg vellíðan, góð samskipti, ábyrgð, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. • Skólinn skal vinna markvisst að forvörnum þar sem hugað er að félagslegri vellíðan og velferð nemenda. • Skólinn er griðastaður barna þar sem þau eiga að finna til öryggis. Hafa skal að leiðarljósi að börn og unglingar þarfnast verndar og leiðsagnar fullorðinna. • Nemendur eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í málum sem þá varða og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þeirra. • Nemendur eiga að fá tækifæri til að skiptast á skoðunum við önnur börn og fullorðna þar sem þau finna lausnir í sameiningu og miðla málum. • Þarfir og áhugi barna ættu að vera sá grunnur sem mótar umhverfi og starfshætti skólans. Starfsfólk skóla skal grípa til viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur þannig að öll börn fái sem best notið sín miðað við þroska og þarfir hvers og eins. • Ofbeldi, einelti, kynbundið og annað andfélagslegt atferli skal aldrei liðið. Skólinn skal grípa til viðeigandi ráðstafana til að uppræta slíkt atferli og koma í veg fyrir að það þróist til að bæta umhverfi nemenda. • Starfsfólk skóla ber ábyrgð á að börnum líði vel í skólanum. Í skólasamfélaginu á nemandi að fá tækifæri til að þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar. Skólinn á, í samstarfi við foreldra, að kappkosta að fylgjast með og efla alhliða þroska allra barna, veita þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og stuðla að öryggi þeirra og vellíðan. Samkvæmt aðalnámskrá eru starfshættir skóla og samskipti allra aðila ekki síður mikilvæg en önnur viðfangsefni til að ná markmiðum skólanna og stuðla að velferð og menntun. Starfshættir skólanna skulu mótast af umburðarlyndi og jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi og ábyrgð. Námsárangur byggir á forsendum nemandans sjálfs, samskiptum og samkennd með vinum og félögum og samskiptum við kennara og annað starfsfólk, sem og af upplifun nemandans um eigin stöðu. Æskilegt er að nemandinn taki þátt í aðgerðum til að móta vinsamlegt umhverfi í skólanum. Foreldrar eru hluti af skólasamfélaginu og er mikilvægt að traust og virðing ríki milli heimilis og skóla. Foreldrar nemenda skulu gæta hagsmuna barna sinna. Þeir skulu hafa náið samráð við starfsfólk skóla, fylgjast með skólagöngu barna sinna og veita þær upplýsingar sem kunna að

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 7 | skipta máli fyrir skólastarfið og velferð barnanna. Foreldrum ber að greina skólanum frá þeim þáttum sem kunna að hafa áhrif á námsframvindu, ástundun og hegðun, svo sem um vanlíðan barna sinna og áföll sem gætu haft áhrif á skólagöngu þeirra, sem og þegar breytingar verða á högum þeirra og aðstæðum. Í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 segir að skólastjórnendum og kennurum beri að eiga samstarf við foreldra um hegðun, líðan og samskipti barna þeirra. Umsjónarkennarar skulu upplýsa foreldra reglulega um skólabrag og bekkjaranda og leita eftir uppbyggjandi samstarfi við foreldrahópinn um hvort tveggja. Þetta á einnig vel við um leikskólann. Skólar eiga að hafa frumkvæði að því að stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda. Kennurum og öðru starfsfólki ber að sýna fjölbreyttum fjölskyldugerðum, menningu og aðstæðum skilning og virðingu. Í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 eru eftirfarandi markmið: • Að nemendur geti notið bernsku sinnar í skólastarfi, notið hæfileika sinna og séu öruggir í öllu starfi á vegum skólans • Að stuðla að ábyrgð nemenda á eigin námi, hegðun og samskiptum með hliðsjón af aldri, þroska og aðstæðum að öðru leyti • Að allir í skólasamfélaginu kappkosti í sameiningu að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag, þar sem öryggi, vellíðan og heilbrigði eru leiðarljós • Að stuðla að góðu samstarfi og samráði milli foreldra og skóla um nám nemenda, hegðun og samskipti og stuðla að gagnkvæmu trausti allra aðila í skólasamfélaginu, gagnkvæmri virðingu, samábyrgð, kurteislegri framkomu og tillitssemi • Að haldið sé uppi námsaga þar sem tekið er tillit til þarfa nemenda, þroska og hæfni með áherslu á mannréttindi, jafnrétti, lýðræðisleg vinnubrögð og bann við mismunun af öllu tagi • Að hver grunnskóli setji sér skólareglur með skýrum viðbrögðum við brotum á reglunum, að úrræði og viðbrögð stuðli að jákvæðri hegðun og miði að því að rækta persónuþroska og hæfni nemenda Í janúar 2022 tóku ný lög gildi sem styðja við farsæld barna með stigskipta þjónustu að leiðarljósi.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 8 | Mælt er með að málefni sem tengjast öryggi, velferð og farsæld barna séu samtvinnuð við heilsustefnu og/eða skólanámskrá grunnskólans svo að vinnan verði markviss og öllum aðgengileg. Skólaþjónusta er ólík milli sveitarfélaga en samstarf við ólíkar stofnanir og svið sem koma að málefnum barna er nauðsynlegt og mikilvægt að muna að saman berum við ábyrgð á velferð barna. Forvarnir Skólinn skal vinna markvisst að forvörnum með því að stuðla markvisst að velferð barna og farsælli skólagöngu þeirra þar sem hugað er að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Fræðsla til starfsmanna, foreldra og nemenda er mikilvægur þáttur forvarna. Góð heilsa er undirstaða velfarnaðar í námi og starfi og virkrar þátttöku í samfélaginu. Heilsa er skilgreind sem líkamleg, andleg og félagsleg velferð. Líðan barns hefur áhrif á sjálfsmynd þess, hvort það hefur trú á eigin hæfni og er áhugasamt og sýnir vilja og getu til að takast á við mismunandi viðfangsefni. Daglegar athafnir í skóla eiga að stuðla að líkamlegri og andlegri vellíðan barns og góðri heilsu. Í skólum gefst tækifæri til að efla heilbrigði og stuðla markvisst að velferð og vellíðan óháð efnahag og aðstæðum á heimili nemenda. Starfsfólk skóla skal ávallt bera velferð nemenda fyrir brjósti og leggja sig fram um að tryggja öryggi, vellíðan og vinnufrið til þess að þeir geti notið skólagöngu sinnar. Almenn menntun miðar að því að efla sjálfsskilning einstaklingsins og hæfni hans til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi. Hugtakið hæfni felur í sér þekkingu og leikni og er samofið siðferðilegum viðhorfum nemenda. Nemendur þurfa að vita hvað þeir kunna og hvað þeir geta og hvernig best er að beita þekkingu sinni og leikni til að hafa áhrif á umhverfi sitt og bæta það. Hæfni er þannig meira en þekking og leikni, hún felur einnig í sér viðhorf og siðferðisstyrk, tilfinningar og sköpunarmátt, félagsfærni og frumkvæði. Upplifun nemenda er mikilvægt atriði í að styrkja velferð þeirra. Það hvernig nemendur upplifa stöðu sína og gengi í skólanum hefur þar áhrif, sem og ytri aðstæður eins og skólahúsnæði. Allt skiptir þetta máli og hefur mismikil áhrif á líðan nemenda. Hafa skal í huga að mælikvarði fullorðinna á þægilegu umhverfi þarf ekki að fara saman við mat barna og unglinga. Spurningalistar sem lagðir eru fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk eru leiðbeinandi um mat á líðan nemenda og beina sjónum að jákvæðum aðstæðum og þeim sem þarf að bæta. Eins geta þeir verið til stuðnings reglubundnum viðtölum við nemendur og foreldra. Tillögur að spurningalistum má finna í viðauka. Réttur barna Allir nemendur eiga rétt á að stunda nám við sitt hæfi. Tækifærin eiga að vera jöfn, óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins. Jafnrétti til náms þýðir að nemanda eru sköpuð bestu skilyrði á hans forsendum, óháð félagslegri og námslegri stöðu. Nemendur eiga að njóta styrkleika sinna og þeim á að leiðbeina til að draga þá fram. Nemandi sem stöðugt upplifir að verða undir og ná ekki settu marki finnur fyrir vanlíðan og vanmætti í skóla. Leggja skal áherslu á styrkleika barna og þörf þeirra fyrir vernd og leiðsögn fullorðinna. Skólum ber að sinna forvarnarstarfi með því að stuðla markvisst að velferð barna og farsælli skólagöngu þeirra. Starfsfólk skóla skal grípa til viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur þannig að öll börn fái notið sín sem best. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 18/1992, segir að með hliðsjón af

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 9 | réttindum og skyldum foreldra eða lögráðamanna, eða annarra sem bera ábyrgð að lögum á börnum, skuldbindi aðildarríki sig til að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefjist og skulu þau í því skyni gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (barnasáttmálinn) var staðfestur hér á landi árið 2013 og er þar með orðinn að lögum. Í Barnasáttmálanum er farið yfir þau réttindi sem börn njóta sérstaklega, þar með talið að þau njóti sérstakrar verndar bæði foreldra sinna og stjórnvalda, að börn eigi rétt á að tjá skoðanir sínar og að stjórnvöld eigi að vernda börn gegn ofbeldi, misbeitingu og vanrækslu af hendi allra þeirra sem annast þau. Sérstaklega er fjallað um réttindi fatlaðra barna og er mikilvægt í leikskólum að fjarlægja hindranir svo að öll börn geti verið virkir þátttakendur í skólanum eins og annars staðar. Mikilvægt er að fólk sem starfar með börnum og ungmennum sé meðvitað um sérstök réttindi barna og taki það alvarlega að standa vörð um þau réttindi. Til er þó nokkuð af námsefni um Barnasáttmálann sem skólar geta nýtt sér. HUGTAKIÐ BARN PERSÓNULEG AUÐKENNI FÉLAGAFRELSI BÖRN SEM FLÓTTAMENN MARKMIÐ MENNTUNAR MENNING, TUNGUMÁL, TRÚARBRÖGÐ MINNIHLUTAHÓPA VERND GEGN MISBEITINGU HVERNIG BARNASÁTTMÁLINN VIRKAR BÖRN Í HALDI VERND Í STRÍÐI BATI OG AÐLÖGUN BÖRN SEM BRJÓTA LÖG BESTU LÖGIN GILDA ALLIR VERÐA AÐ ÞEKKJA RÉTTINDI BARNA HVÍLD, LEIKUR, MENNING OG LISTIR VERND GEGN SKAÐLEGRI VINNU VERND GEGN SKAÐLEGUM VÍMUEFNUM VERND GEGN KYNFERÐISOFBELDI VERND GEGN BROTTNÁMI, VÆNDI OG MANSALI FÖTLUÐ BÖRN HEILSUVERND, VATN, MATUR, UMHVERFI EFTIRLIT MEÐ VISTUN BARNA UTAN HEIMILIS FÉLAGSLEG OG EFNAHAGSLEG AÐSTOÐ NÆRING, FÖT OG ÖRUGGT HEIMILI AÐGANGUR AÐ MENNTUN PERSÓNUVERND OG EINKALÍF AÐGENGI AÐ UPPLÝSINGUM ÁBYRGÐ FORELDRA VERND GEGN OFBELDI UMÖNNUN UTAN FJÖLSKYLDU ÆTTLEIDD BÖRN TENGSL VIÐ FJÖLSKYLDU TENGSL VIÐ FORELDRA Í ÖÐRUM LÖNDUM VERND GEGN BROTTNÁMI VIRÐING FYRIR SKOÐUNUM BARNA FRELSI TIL AÐ DEILA HUGMYNDUM SÍNUM SKOÐANA- OG TRÚFRELSI ÖLL BÖRN ERU JÖFN ÞAÐ SEM BARNINU ER FYRIR BESTU RÉTTINDI GERÐ AÐ VERULEIKA LEIÐSÖGN FJÖLSKYLDU LÍF OG ÞROSKI NAFN OG RÍKISFANG BARNASÁTTMÁLI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Mikill samhljómur er með Barnasáttmálanum og öðrum íslenskum lögum sem varða börn. Samkvæmt barnalögum, nr. 76/2003, á barn rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Óheimilt er að beita barn hvers kyns ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Barn á rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum sem það varðar og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 10 | Í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 (22. og 23. gr.) er komið inn á ábyrgð skólastjórnenda sem ber að gera viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að nemendur verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni eða kynferðislegri áreitni í skólum og ábyrgð þeirra á viðeigandi fræðslu til nemenda um jafnréttismál. Tilkynningarskylda til barnaverndarnefnda Í barnaverndarlögum, nr. 80/2002, stendur að hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi, eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu, sé skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart. Sérstaklega er skólastjórum, kennurum, þroskaþjálfum og öðrum þeim sem koma að málefnum barna í skólasamfélaginu skylt að fylgjast með hegðun, uppeldi og aðbúnaði barna og gera barnaverndarnefnd viðvart ef ætla má að aðstæður barns séu óviðunandi. Tilkynningarskylda samkvæmt barnaverndarlögum gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta. Á vef Barna- og fjölskyldustofu má finna verklagsreglur og vinnulag, þar með taldar verklagsreglur skóla- og heilbrigðisstarfsfólks. Skólabragur Jákvæður skólabragur sem verndar og styrkir nemandann byggir meðal annars á þátttöku hans. Jákvætt námsumhverfi og gott skólahúsnæði stuðlar að góðum námsárangri. Meðal þátta sem skipta máli eru: • Hvernig er ytra umhverfi? Er skólaumhverfi bjart og hlýtt, henta aðstæður samskiptum við vini? • Hvernig er innra umhverfi? Skólabragur, samskiptamáti, áhrif nemenda, hafa nemendur komið að mótun umhverfis og aðstæðna? • Hvernig eru skilaboð frá þeim fullorðnu? Dæmi: „Þú sem nemandi skiptir máli og við viljum að þú lærir.“ • Hvernig er búið að öryggi barna? Er starfsmaður alltaf til staðar og geta nemendur treyst honum til að bregðast við og grípa inn í aðstæður? • Hvernig er félagsstaða foreldra? Hún getur verið misjöfn og haft áhrif á samskipti heimilis og skóla.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 11 | Ofbeldisforvarnir í grunnskóla Með ofbeldi er í þessari handbók átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í öllum birtingarmyndum þess. Þegar unnið er að ofbeldisforvörnum í skólum er mikilvægt að það sé gert á heildrænan máta. Stundum hefur áherslan verið of mikil á kennslu og fræðslu um ofbeldi. Slík kennsla getur verið gagnleg en mikilvægt er að horfa einnig til þess að skapa aðstæður þar sem börn verða ekki fyrir ofbeldi. Þá er átt við að starfsfólk bregðist við á samræmdan hátt þegar mál koma upp í leikskólanum, að félags- og tilfinningafærni sé kennd markvisst, að eftirlit með börnum sé nógu þétt til að hægt sé að bregðast hratt við ef eitthvað fer úrskeiðis í samskiptum milli barna, að skýrir ferlar séu um tilkynningar til barnaverndarþjónustu og að starfsfólk fái kennslu um fjölbreytileika og geti því gengið á undan með góðu fordæmi í samskiptum. Í 7. grein reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila í skólasamfélaginu í grunnskólum, nr. 1040/2011, segir að allir skólar skuli hafa heildstæða stefnu fyrir skólann til að fyrirbyggja og bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri einangrun. Skólum ber að setja sér aðgerðaáætlun gegn einelti og flóknum samskiptavanda með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum. Áætlunin skal ná til allrar starfsemi og alls starfsfólks skóla og skal kveða á um skyldur þess til að vinna gegn einelti með ábyrgum og virkum hætti. Áætlunin skal ná til allra nemenda og styrkja þá til að bera virðingu hver fyrir öðrum, sýna tillitssemi og samkennd og taka afstöðu gegn einelti. Aðgerðir gegn einelti eru órjúfanlegur þáttur í að skapa nemendum öruggt umhverfi og taka til skólans í heild, einstakra námshópa og einstaklinga. Hver kennari ber ábyrgð á að framfylgja með virkum og ábyrgum hætti aðgerðaáætlun skólans gegn einelti og skólastjóri ber ábyrgð á að starfið sé samhæft. Eineltisáætlun á að vera virk í skólanum. Traust og vel- líðan nemanda byggir á að honum sé ekki strítt eða hann niðurlægður á annan hátt. Nemandi á að geta treyst starfsfólki skólans til að grípa inn í aðstæður og skipta sér af, sé þess þörf. Kanna þarf reglulega eðli og umfang eineltis í skólum, kynna niðurstöður og nýta þær til úrbóta. Aðgerðaáætlun gegn einelti er hluti af skólanámskrá og er kynnt sérstaklega eftir því sem þurfa þykir og skal birt opinberlega. Aðilar skólasamfélagsins (foreldrar og forráðamenn nemenda, nemandi, starfsfólk skóla, stjórnendur skóla), auk annarra aðila sem starfa með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi sem hefur stoð í grunnskólalögum, geta óskað eftir aðstoð fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu skólaþjónustu sveitarfélaga. Fagráðið starfar á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis en umsýsla þess er hjá Menntamálastofnun. Ráðuneytið gefur út verklagsreglur um starfsemi fagráðsins, málsmeðferð og eftirfylgni að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Einnig er mikilvægt að skólar setji sér áætlanir um viðbrögð við ofbeldi og verklagsreglur fyrir starfsfólk um tilkynningar vegna ofbeldis sem það verður vitni að eða verður áskynja í störfum sínum. Tillaga að gátlista um forvarnir gegn ofbeldi, einelti og kynferðislegu áreiti er í viðauka 10.14.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 12 | Í 28. grein Barnasáttmálans, sem fjallar um aðgang að menntun, er sérstaklega nefnt að aldrei má beita barn ofbeldi eða niðurlægja það, svo sem vegna brota á skólareglum. Með þetta í huga verður að vera þekking meðal starfsfólks um hvernig er hægt að taka á ofbeldi gegn ungum börnum án þess að beita refsandi aðferðum sem skila ekki árangri. Í þingsályktun frá 2020 um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni kemur meðal annars fram að allt starfsfólk leikskóla skuli taka netnámskeið sem Barnahús hefur gefið út. Eins er fjallað um að skólaskrifstofur miðli þekkingu og veiti leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum stuðning til að tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði samþættar skólastarfi, einkum í kennslu, og að starfsfólk hljóti fræðslu. Skólaskrifstofur eiga að tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði markviss þáttur í skólastefnu sveitarfélaga og í forvarnastefnu hvers skóla um sig. Til að mæta þessum kröfum hefur verið opnuð vefgátt með náms- og fræðsluefni fyrir starfsfólk og nemendur á stoppofbeldi.namsefni.is en að auki hefur einnig verið þróað og þýtt náms- og fræðsluefni sem ætlað er að fræða leikskólabörn um kynferðislegt ofbeldi, að slíkt sé aldrei þeim sjálfum að kenna og að það sé gagnlegt að segja einhverjum fullorðnum frá sem þau treysta. Þá er mikilvægt að starfsfólk þekki einkenni ofbeldis hjá börnum og inni á vefgáttinni StoppOfbeldi er einnig að finna örnámskeið um einkenni ofbeldis hjá börnum á leikskólaaldri, tilkynningarskyldu starfsfólks og ferli mála. Þá er gott að hafa í huga að einkenni ofbeldis birtast ekki eins hjá öllum börnum og geta aðrir þættir haft áhrif. Óheimilt er að ráða til starfa við grunnskóla einstakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild leikskólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 13 | 2. Rafrænt öryggi grunnskólabarna SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) og samtökin Heimili og skóli hafa í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið tekið saman almenn viðmið um birtingu myndefnis, meðferð upplýsinga um börn á netinu og notkun samfélagsmiðla. Viðmiðin gilda einkum um heimasíður skóla, íþróttafélaga og annarra sem koma að æskulýðs- og tómstundastarfi. Hægt er að tilkynna um ólöglegt og óviðeigandi efni á neti í gegnum ábendingahnapp Barnaheilla. Á heilsuvera.is er að finna leiðbeiningar varðandi skjáviðmið fyrir börn. Vefur um miðlalæsi: https://midlalaesi.is/

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 14 | 3. Slysavarnir og líkamlegt öryggi Þessi hluti handbókarinnar á við um grunnskóla og er stuðst við lög, reglugerðir og aðalnámskrá. Handbókinni er meðal annars ætlað að vera leiðarvísir við gerð viðbragðsáætlana fyrir grunnskóla. Í lögum um landlækni nr. 41/2007 segir að hann skuli, í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, skipuleggja og halda skrár á landsvísu um heilsufar, sjúkdóma, slys, lyfjaávísanir, fæðingar og starfsemi og árangur heilbrigðisþjónustunnar. Formleg skráning í Slysaskrá Íslands hófst 1. október 2001. Í hana hafa verið skráðar staðlaðar lágmarksupplýsingar um slys, slasaða einstaklinga og eignatjón. Finna má tölur um fjölda slasaðra eftir aldri og kyni á vefsíðu Embættis landlæknis. Þar sem slysaskráin reyndist ekki nógu vel hefur verið ráðist í endursmíði hennar og endurskoðun á slysaskráningu. Á meðan sú vinna stendur yfir er gert hlé á skráningu slysa í miðlægan gagnagrunn. Vonir standa til að vinnunni ljúki á næstu misserum. Eldri tölur benda til þess að alvarlegustu slysin hér á landi verði á eða við heimili barna. Má þar nefna að alvarlegustu brunaslysin verða á eða við heimili barna á grunnskólaaldri. Forvarnir og fræðsla Allir starfsmenn skóla (bæði fastráðnir og lausráðnir) þurfa að kunna skyndihjálp fyrir starfsmenn grunnskóla og viðhalda þeirri þekkingu með því að fara yfir og æfa reglulega viðbrögð við slysum og vá. Mikilvægt er að allir starfsmenn skólans kunni að bregðast við slysi á fumlausan hátt og er það á ábyrgð skólastjóra að svo sé. Hann ætti einnig að sjá til þess að haldið sé námskeið í slysavörnum og skyndihjálp annað hvert ár þar sem starfsmenn endurnýja skyndihjálparréttindi sín. Þeir sem halda slysavarnanámskeið fyrir starfsmenn skóla skulu hafa til þess bæra þekkingu og reynslu. Einnig er mikilvægt að starfsmenn skóla æfi reglulega viðbrögð við mismunandi slysum. Þegar nýir starfsmenn hefja störf í skólanum er mikilvægt að þeir komist á námskeið í slysavörnum og skyndihjálp eins fljótt og auðið er. Skólastjóri á að hafa yfirlit yfir alla starfsmenn sem hafa lokið skyndihjálparnámskeiði. Bent er á að gott er að halda yfirlit í öryggishandbók skólans yfir þá starfsmenn sem hafa farið á slysavarnanámskeið. Allt starfsfólk skóla ber ábyrgð á börnum meðan þau eru í skólanum og verður að grípa inn í ef barn sýnir af sér hegðun sem getur leitt til slysa. Starfsfólk þarf að vera meðvitað um hvaða hættur geta leynst í skólum og umhverfi þeirra og hvar. Hlutverk skólahjúkrunarfræðinga er ekki að sinna slysum; það er alfarið á ábyrgð starfsmanna skólans. Ef um alvarlegt slys eða bráðaveikindi er að ræða og hjúkrunarfræðingur er á staðnum er heimilt að kalla viðkomandi til til aðstoðar þangað til sjúkrabíll kemur á staðinn. Nauðsynlegt er að tryggja að kennarar hafi ávallt yfirlit yfir réttan fjölda nemenda í umsjá sinni hverju sinni.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 15 | Fræðsla starfsmanna um öryggismál Öryggi nemenda í skólum ætti að vera forgangsmál. Það er því mikilvægt að allir starfsmenn fái þjálfun í öryggismálum. Mikilvægt er að þjálfun í öryggismálum byrji um leið og starfsmenn taka til starfa og að því sé fylgt eftir að þeir öðlist færni í öryggismálum. Meðal þess sem þarf að hafa í huga fyrir alla starfsmenn: • Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp annað hvert ár til að starfsmenn geti endurnýjað skyndihjálparréttindi sín • Árleg könnun á kunnáttu og þekkingu starfsmanna í öryggismálum og viðbrögðum skólans við slysum, bruna og annarri vá • Regluleg þjálfun starfsmanna í viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans • Starfsmenn kynni sér hvar sjúkrakassinn er geymdur og þekki innihald hans Fyrir nýja starfsmenn þarf sérstaklega að huga að: • Kynningu á viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans • Kynningu á staðsetningu sjúkrakassa og öryggisupplýsinga • Sérhæfðu námskeiði í slysavörnum og skyndihjálp eins fljótt og auðið er Öryggisferlar og viðbragðsáætlanir Skriflegir og virkir öryggisferlar eiga að vera í öllum grunnskólum og upplýsingar þurfa að vera á áberandi stað/stöðum. Mikilvægt er að slíkt svæði sé tilgreint sem neyðarstöð. Allt starfsfólk á að kunna öryggisferla skólans og hafa auðveldan aðgang að skriflegum upplýsingum um þá. Kynna þarf verkferla viðbragðsáætlana fyrir nýju starfsfólki og afleysingastarfsfólki á fyrstu starfsdögum þess í skólanum. Hlutverk og ábyrgð Skilgreina skal ábyrgð starfsmanna í starfslýsingu og hlutverk þeirra í viðbragðsáætlun. Allt starfsfólk á að vita hvert hlutverk þess er ef upp kemur neyðarástand. Stjórnendur öryggismála á vinnustað eiga að tryggja öryggi nemenda, sjálfra sín og starfsfólks og að unnið sé eftir viðbragðsáætlunum og gerð áhættumats. Áhættumat er áhrifarík aðferð við að tryggja hámarksöryggi nemenda í skólum. Áhættumat ætti að byggja á skráningu skóla á ofbeldisatvikum og slysum þar sem áverkar við slys eru flokkaðir á grundvelli alvarleika. Með því móti verður matið faglegt og hægt að fyrirbyggja að alvarlegir atburðir endurtaki sig. Reglubundnar æfingar á öryggisferlum Mikilvægt er að viðbrögð við ólíkum aðstæðum, svo sem alvarlegum slysum, eldi eða náttúruvá, séu æfð reglulega. Með því að æfa mismunandi viðbragðsáætlanir reglulega verður þekking og færni starfsfólks meiri og betri. Það eykur líkur á að unnt sé að bregðast fumlaust við mismunandi aðstæðum. Mikilvægt er að skólastjóri feli einum starfsmanni að fylgjast með æfingunni og skrá niður hvernig gengur, þannig að ef upp koma vandamál sé til skráning að æfingu lokinni sem farið er

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 16 | yfir, það sem miður fór rætt og fundnar leiðir til úrbóta. Slíkt ferli er mjög lærdómsríkt og eykur öryggi starfsmanna. Viðbragðsáætlanir vegna slyss og eldsvoða er mikilvægt að æfa tvisvar sinnum á ári. Viðbragðsáætlun við vá er mikilvægt að æfa einu sinni á ári. Tegundir viðbragðsáætlana Gera þarf minnst fjórar ólíkar tegundir viðbragðsáætlana sem taka mið af hættunni. Viðbrögð við slysi Viðbrögð við eldsvoða Viðbrögð við náttúruvá Viðbrögð við hættum vegna hegðunar nemenda Meta þarf ástand hins slasaða út frá þekkingu á skyndihjálp. Koma öllum út og safna þeim saman á fyrir fram ákveðinn stað Koma öllum í öruggt skjól og safna saman á fyrir fram ákveðinn stað Fyrirbyggjandi aðgerðir Hringja í 112 Hringja í 112 Hringja í 112 Viðbrögð við ófyrirséðri og yfirvofandi hættu Tryggja öryggi á slysstað Nafnakall Nafnakall Eftirfylgni vegna einstakra atvika Veita slösuðum aðhlynningu Veita slösuðum aðhlynningu Veita slösuðum aðhlynningu Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum nr. 1040/2011 Grunnupplýsingar um nemanda vegna slysa og bráðaveikinda Mikilvægt er að skólinn hafi grunnupplýsingar um nemendur í tengslum við bráðaofnæmi, sjúkdóma eða slys sem getur þurft að bregðast við fyrirvaralaust. Upplýsingarnar þurfa að vera skriflegar og þær geymdar á aðgengilegan hátt þar sem allt starfsfólk skólans veit um þær og getur nálgast þær þegar þörf krefur. Staðurinn þar sem sjúkrakassinn er geymdur og aðrar upplýsingar um viðbrögð við eldsvoða, slysum eða náttúruvá gæti hentað. Forráðamenn/forsjáraðilar bera ábyrgð á að grunnupplýsingar séu réttar. Í byrjun hvers skólaárs er mikilvægt að leikskólinn hafi frumkvæði að því að yfirfara upplýsingarnar í samráði við forráðamenn/forsjáraðila og fái ávallt upplýsingar um breytingar. Grunnupplýsingar um barnið (bráðablaðið) eru ætlaðar til að láta fylgja barni ef hringja þarf á sjúkrabíl og starfsmaður þarf að fara með barninu í tilfelli bráðaveikinda eða alvarlegra slysa.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 17 | Nauðsynlegar upplýsingar um barn vegna slysa og bráðaveikinda • Nafn barns • Kennitala barns. • Er barnið með ofnæmi? Nauðsynlegt er að skrá ofnæmi sem vitað er um. • Er barnið, fatlað eða með greindan sjúkdóm? Mikilvægt er að skrá tegund fötlunar, heiti sjúkdóms og nafn læknis sem annast barnið. • Tekur barnið lyf að staðaldri? Mikilvægt er að skrá heiti lyfs, magn og tímasetningu inntöku. • Skrá ber nöfn foreldra, heimilisfang, heimasíma, farsíma, vinnusíma og vinnustað. Nauðsynlegt er að skrá heiti vinnustaðar og heimilisfang og deild ef um stóran stað er að ræða. • Skrá þarf nafn á þeim sem hafa á samband við ef ekki næst í foreldra, heimilisfang, símanúmer, vinnusíma og vinnustað. • Taka þarf fram ef foreldrar eiga erfitt með að skilja eða tala íslensku og tilgreina móðurmál þeirra. Sjúkrakassi Í sjúkrakassa á að vera sá búnaður sem talinn er upp í lista yfir innihald sjúkrakassa hér að neðan. Ef fleira er í kassanum getur það tafið starfsfólk við að finna það sem leitað er að. Allir starfsmenn skólans verða að kunna að nota þann búnað fumlaust sem í sjúkrakassanum er. Mikilvægt er að skólastjóri feli einum starfsmanni ábyrgð á sjúkrakassa. Ábyrgðarmaður sjúkrakassa er starfsmaður skólans sem sér um að í honum sé ávallt sá búnaður sem þar á að vera. Eftir notkun á sjúkrakassa þarf ábyrgðarmaður að fara yfir innihald hans. Ef einhvern búnað vantar í kassann á að gera tafarlausar úrbætur á því. Skólahjúkrunarfræðingur ber ekki ábyrgð á innihaldi sjúkrakassa; hann er alfarið á ábyrgð skólastjórnenda. Fjöldi sjúkrakassa í hverjum skóla fer eftir stærð og gerð húsnæðis. Mikilvægt er að sjúkrakassi sé ávallt aðgengilegur, innan seilingar og að allir starfsmenn viti um staðsetningu hans. • Í sjúkrakassanum á að vera listi yfir innihald. • Sjúkrakassi þarf að vera aðgengilegur og auðveldur í flutningum. • Mikilvægt er að notandi kynni sér innihald kassans og viti hvernig á að nota það. • Æskilegt er að í skólanum sé til bakpoki sem nota á til fyrstu hjálpar og hægt er að taka með sér í vettvangsferðir. • Handþvottur er mikilvægur áður en átt er við sár. • Nota skal einnota hanska þegar blóð er meðhöndlað. • Dauðhreinsað innihald kassans hefur takmarkaðan endingartíma. Útrunnum búnaði þarf að skipta út fyrir nýjan.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 18 | • Ekki geyma lyf í sjúkrakassanum. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 skulu lyf geymd í læstum hirslum. • Mikilvægt er að fara yfir innihald sjúkrakassans eftir hverja notkun og fara reglulega yfir innihald hans með tilliti til fyrningardagsetninga. Listi yfir innihald sjúkrakassa • 1 rúlla plástur (bréfplástur, heftiplástur) • 1 lítil skæri (stálskæri) • 1 góð flísatöng (riffluð) • 1 stk. 10 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 stk. 7,5 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 stk. 5 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 pk. skyndiplástur 4 cm (tauplástur) • 1 pk. skyndiplástur 6 cm (tauplástur) • 1 fetill (þríhyrningur) • 5 stk. 10-30 ml saltvatn 0,9% • 5 bómullarpinnar í lokuðu plasti (plastfilmu) • 1 pk. 10x10 cm vaselíngrisja • 1 pk. 5x5 cm vaselíngrisja • 1 stk. sprauta 15 ml • 1 pk. 10x10 cm grisjur (5 stk.) • 2 pk. 10x10 cm grisjur (1 stk.) • 1 pk. 5x5 cm grisjur (5 stk.) • 2 pk. 5x5 cm grisjur (1 stk.) • 1 par af einnota latexfríum hönskum • 1 stk. einnota blástursgríma (vörn gegn smiti) Öryggisatriði í upphafi skólagöngu Góð samskipti foreldra og skóla eru grundvallaratriði þegar tryggja þarf öryggi barna. Þar sem foreldrar og skóli bera sameiginlega ábyrgð á öryggi barnsins á leið í og úr skóla er mikilvægt að kynna fyrir foreldrum hvaða öryggisreglur gilda í skólanum og hvernig heimilið og skólinn geta hjálpast að við að framfylgja þeim til að tryggja börnum hámarksöryggi. Mikilvægt er að setja upplýsingarnar á heimasíðu skólans og fjalla um öryggismál og viðbragðsáætlanir í skólanámskrá. Eftirfarandi atriði er mikilvægt að kynna fyrir foreldrum: • Reglur skólans • Aðferðir skólans við að tryggja jákvæðan skólabrag og öryggi nemenda • Viðbrögð í skóla ef barn hlýtur minniháttar meiðsli og hvað talin eru minniháttar meiðsli • Viðbrögð í skóla ef barn verður fyrir ofbeldi af einhverju tagi innan eða utan skóla eða hlýtur alvarleg meiðsli á skólatíma • Upplýsingar um nemanda vegna slysa og bráðaveikinda • Tryggingar skólans ef barnið slasast – hver ber kostnað • Þeir ferlar sem unnið er eftir þegar slys verður

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 19 | • Þeir ferlar sem unnið er eftir í kjölfar slyss • Fyrirkomulag öryggismála í skólanum og í öllu starfi hans • Örugg aðkoma gangandi og hjólandi barna að skóla • Öryggi í akstri skólabíla • Örugg aðkoma foreldra sem aka börnum í skóla • Öryggi í ferðalögum skólabarna • Vinnureglur skólans varðandi ofbeldi og einelti • Viðbrögð við náttúruvá – almannavarnir • Starf skólahjúkrunarfræðings – skólaheilsugæslu Í upphafi hvers skólaárs er mikilvægt að minna foreldra á ákveðin öryggisatriði, svo sem öryggi barna á leið í og úr skóla hvort sem þau ganga, hjóla eða eru keyrð í skólann í einkabíl eða í skólabíl. Viðmið um heilsutengdar forvarnakynningar og fræðslu í skólum Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla skulu skólastjórnendur, kennarar og annað starfsfólk skóla vera meðvituð um hvað felst í heilsutengdum forvörnum og geta nýtt sér áreiðanlegar upplýsingar um þætti sem hafa áhrif á líkamlegt, andlegt og félagslegt heilbrigði nemenda. Mikilvægt er að leggja áherslu á að grunnskólar vinni markvisst að forvörnum. Þess skal gætt að forvarnir og heilsuefling í skólum séu heildstæð og unnin í samstarfi við nemendur, foreldra og nærsamfélag. Heilsueflingar- og forvarnastarf skal ávallt byggt á aðferðum sem búið er að sýna fram á með vísindalegum rannsóknum að beri árangur. Forsenda árangursríkra forvarna er sýnileg stefna skóla, uppbyggilegt umhverfi og fagmenntað starfsfólk. Við skipulag heilsutengdra forvarnakynninga og fræðslu í skólum skal þess gætt að: • Fræðslan byggi á fræðilegum grunni og sé löguð að aldri nemenda. • Áhersla sé lögð á fjölbreyttar aðgerðir sem fela í sér umræður um ákvarðanatöku og þjálfun í samskiptahæfni. Markmiðið er að styrkja félagslega hæfni barna og ungmenna, sjálfsmynd þeirra og getu til að forðast áhættuhegðun, t.d. að afþakka tóbak og vímuefni þegar þau eru í boði og taka ábyrga afstöðu gagnvart allri mismunun, einelti og öðru ofbeldi. • Styrkja tengsl nemenda við skólasamfélagið og byggja upp þrautseigju þeirra. • Byggja upp fagmennsku og þjálfun þeirra sem sinna fræðslunni. Varast ber ... að beita hræðsluáróðri eða einhliða fræðslu sem hefur lítil sem engin áhrif á fjöldann og hugsanlega neikvæð áhrif á hegðun ákveðinna aðila. Þó að hræðsluáróður sé stundum eftirminnilegur og börn og ungmenni áhugasöm um slíka fræðslu sýna rannsóknir að hún hefur ekki tilætluð áhrif. Slík fræðsla getur haft neikvæð áhrif á hegðun og hugsanlega ýtt undir áhættuhegðun hjá ákveðnum einstaklingum. Í þessu tilliti þarf að hafa í huga að valda ekki skaða þó að ásetningurinn sé góður.

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 20 | Hafa skal í huga að: • Áhrifaríkar forvarnir byggja á niðurstöðum rannsókna og sýna rétta mynd af stöðu ákveðinna hegðunar og umfangi hennar. • Eftir því sem börn og ungmenni meta að fleiri stundi ákveðna hegðun eru þau líklegri til þess að prófa sjálf. Því er mikilvægt að taka mið af staðbundnum gögnum. • Áhrifaríkar aðferðir þurfa að vera heildstæðar og í samstarfi við foreldra og nærsamfélagið. • Fræðsluerindi sem einungis leggja áherslu á aukna þekkingu geta verið nauðsynleg en eru sjaldan nægjanleg til að hafa áhrif á hegðun. • Kennsla þarf að vera gagnvirk, sveigjanleg, umhyggjusöm og án innrætingar þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að tjá sig. • Áhrifaríkt er að þjálfa félagsfærni, ákvarðanatöku, markmiðasetningu, að standast félagsþrýsting og að setja sig í spor annarra. • Til þess að ná árangri er betra að hafa langtímaáætlun sem byggir á heildstæðri nálgun með mælanlegum markmiðum, skammtímaátak getur verið hluti af henni. • Kennarar eða aðrir fagaðilar innan skólasamfélagsins eru best til þess fallnir að halda utan um kennslu í forvörnum, m.a. svo að börn og ungmenni geti í framhaldinu leitað til þeirra með spurningar eða aðstoð. • Kennsla í fámennum hópi er áhrifaríkari en kennsla í fjölmennum hópi. • Ef nauðsynlegt er að leita til utanaðkomandi aðila með fræðslu er æskilegt að kennari eða annar fagaðili innan skólans sé virkur þátttakandi. Mikilvægt er að skoða vel fyrir fram hvað slíkt fræðsluerindi inniheldur. • Skólinn skal leggja sig fram um að aðstoða þá nemendur sem eiga í vanda vegna tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna með umhyggju að leiðarljósi. Samstarf foreldra og skóla Samstarf milli skóla og foreldra ólögráða nemenda er mikilvægur liður í að efla forvarnir. Foreldrar eru ein mikilvægasta fyrirmynd barna sinna. Það er því mikilvægt að hvetja foreldra til að tala við börn sín og ungmenni um tóbak, áfengi og önnur vímuefni og taka skýra afstöðu gegn því að þau prófi eða noti slík efni. Forvarnarstefna Í skólanámskrám grunnskóla skal birta stefnu skóla í einstökum málefnum, s.s. forvörnum. Sjá einnig: Aðalnámskrá grunnskóla kafli 7. Embætti landlæknis er tekið fram hvað virkar í forvörnum

| 40344 | MIÐSTÖÐ MENNTUNAR OG SKÓLAÞJÓNUSTU 2024 | 21 | 4. Öryggi í námsumhverfi Mikilvægt er að starfsfólk skóla sé meðvitað um þá hættu í nánasta umhverfi sem nemendum getur stafað af svo sem tækjum og tólum og sjái fyrir þær hættur sem hugsanlega geta komið upp. Ganga þarf úr skugga um að ekki leynist hættur í umhverfi nemenda sem valdið geta slysum og því er mikilvægt að allt umhverfi sé eins öruggt og hægt er. Æskilegt er að reynt sé að koma í veg fyrir eins mikið og hægt er og gera áhættumat. Húsnæði og skólalóðir skulu uppfylla kröfur laga um grunnskóla, nr. 91/2008, reglugerðar um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða, nr. 657/2009, aðalnámskrár grunnskóla, laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, reglugerðar um öryggi leikvallartækja og leiksvæða og eftirlit með þeim, nr. 942/2002 ásamt reglugerð um vélar og tæknilegan búnað, nr. 1005/2009 og Vinnuumhverfisvísi Vinnueftirlits ríkisins um skóla þar sem við á. Einnig ber að uppfylla kröfur heilbrigðis- og byggingaryfirvalda til slíkra mannvirkja. Húsnæði, skólalóð og allur aðbúnaður þurfa að vera þannig úr garði gerð að unnt sé að ná markmiðum laga um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla. Er þar sérstaklega átt við að nemendum og starfsfólki skóla sé búið öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi sem skapar öryggi og vellíðan, svo sem varðandi hentugan húsbúnað, hljóðvist og lýsingu, fjölbreytni í náms- og leikaðstöðu og annan búnað. Starfsmenn Meta þarf hverju sinni hversu margir starfsmenn þurfa að vera til staðar bæði í skólahúsnæðinu og á skólalóð. Ef starfsfólk þarf að bregða sér frá er mikilvægt að annað starfsfólk sé látið vita. Það hefur komið fyrir að slys eða ofbeldisatvik hafi orðið í og við skóla og enginn starfsmaður verið á svæðinu. Þessu hefði mögulega verið hægt að afstýra hefði starfsmaður verið til staðar. Skólastofur Við skipulag og framkvæmd vinnuumhverfis og vinnuaðstæðna í skólastofum skal taka mið af Vinnuumhverfisvísi Vinnueftirlits ríkisins ásamt öðrum þeim vinnuumhverfisvísum, lögum og reglugerðum sem þar er getið. Í verkmenntastofum skal sérstaklega hugað að öryggiskröfum um vélar, tæknilegan búnað, efnisnotkun, loftgæði og loftræstingu og aðgengi að fyrstu hjálp og taka mið af reglugerð um vélar og tæknilegan búnað, nr. 1005/2009. Hljóðvist Hávaði hefur ekki einungis áhrif á heyrn og nám. Þekkt er að hávaði veldur streitu og getur haft aðrar neikvæðar afleiðingar á andlega og líkamlega líðan barna. Til að meta áhrif hávaða á nám og líðan nemenda í skólum er mikilvægt að við reglulegar kannanir sé spurt sérstaklega út í hljóðvist og vinnuaðstæður barna. Mikilvægt er að mælingar séu miðaðar við börn og unglinga og taki sérstakt tillit til heyrnar- og hljóðnæmni þeirra sem og þeirrar starfsemi sem fram fer í skólanum. Mikilvægt er að miðað sé við þau skilyrði sem þarf til þess að börn geti tileinkað sér nám. Ekki er nóg að miða við þau mörk hávaða sem beinlínis skemma heyrn. Mikilvægt er að allur búnaður sé keyptur með góða hljóðvist í huga. Á vef Umhverfisstofnunar eru leiðbeiningar

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=