Orðspor 3 - vinnubók

46 Læsi og lesfimi Rataðu! 1 Þú ert á Heathrow flugvelli í London. Þú flaugst hingað í morgun með foreldrum þínum. Í hamaganginum við að grípa töskurnar af færibandinu varðstu viðskila við foreldrana. Þú ert eins þíns liðs. Nú eru góð ráð dýr! Þér þykir ekki þörf á að hafa samband við lögregluna og tilkynna að þú hafir tapað foreldrunum. Tvennt kemur þar til. Annars vegar er rafhlaðan í símanum þínum tóm og hins vegar veist þú nákvæmleg hvert skal halda. Ferðinni er heitið inn í borgina, nánar tiltekið á NiceLife hótelið. Þú hefur dvalið þar áður, kannt að ferðast með neðanjarðarlestinni og veist að lestarstöðin við hótelið kallast Embankment . Það eina sem þú þarft að gera er að lesa í kortið og taka réttar lestir. Ferðin gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig en þú nærð á áfangastað á endanum. Er það ekki annars?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=