Orðspor 1

ORÐSPOR 42 1 3 2 Lestrartækni Forlestur – lestur – eftirlestur Við fyrstu sýn getur fræðitexti virkað ákaflega langur og verið uppfullur af orðum sem erfitt er skilja. Upplýsingarnar streyma til manns og flókið getur reynst að muna allt sem maður les. En ef maður kann réttu tökin verður lesturinn leikur einn. Forlestur: Áður en þú lest textann. Skoðaðu vel fyrirsögn textans, millifyrirsagnir, myndir og myndatexta. Spyrðu sjálfan þig eftirfarandi spurninga: Um hvað er þessi texti? Hvað veit ég um efnið nú þegar? Hvað væri gott að vita meira um efnið? Eru einhver orð sem ég ekki skil og þarf nánari útskýringu á? Lestur: Á meðan þú lest yfir textann. Lestu textann vel og vandlega. Fylgstu með heilanum og passaðu að hann missi ekki athyglina. Stoppaðu eftir hverja efnisgrein og hugsaðu um hvort þú hafir skilið það sem þú varst að lesa. Flettu upp orðum í orðabók/tölvuorðabók sem þú ekki skilur. Eftirlestur: Til umhugsunar eftir lestur. Ræddu efni textans við námsfélaga ef mögulegt er. Endursegðu í stuttu máli efni textans. Skrifaðu niður lykilorð úr textanum. Gerðu hugarkort. Lykilorð Orð úr textanum sem skipta miklu máli. Nokkurs konar aðalatriði sem mikilvægt er að muna. Lykilorð geta verið nöfn, heiti, ártöl, atburðir eða hugtök. Endursögn Að endursegja er að segja frá einhverju, með eigin orðum, sem maður hefur lesið eða heyrt. Myndatexti Stuttur texti sem yfirleitt er að finna fyrir neðan eða til hliðar við myndir. Oft ská- eða feitletraður.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=