Orð eru ævintýri - hugmyndabanki fyrir leikskóla

| Orð eru ævintýri | Hugmyndabanki fyrir leikskóla | 2922 | MMS 2024 | 93 Spil sítróna vigt tafla ryksuga tvinni bolli skjaldbaka snigill augabrún nál samloka kafbátur eyrnaskjól karfa blandari ketill kaktus hjólastóll egg dekk saxófónn vifta smekkbuxur hundabein leðurblaka vasaljós regnbogi tromma köngulóarvefur klósettpappír bíll spergilkál fuglabúr lest þvottaklemma tjald nashyrningur lyftari gardínur hjólabretti slanga einhyrningur ruslafata hattur ruggustóll lúpína kleina brauðrist hnykill Sjá leiðbeiningar á vef mms.is Leiðbeiningar • Markmið spilsins er að nefna, segja frá og lýsa hlutum með því að nota þann orðaforða sem þátttakandi ræður yfir. • Það sem þarf: Tening og tappa (t.d. af mjólkurfernum). Einnig má nota önnur tiltæk spilatákn. • Takmarkið er að allir leikmenn noti alla tappana sem þeir fengu úthlutað. Leikmenn eiga að tala um myndirnar í spilinu og gott er þegar þeir tengja við það sem þeir þekkja, úr raunveruleikanum, bókum, sögum, söngvum o.s.frv. Með þessu fá leikmenn tækifæri til að auka orðaforða sinn. • Spilareglur/hvernig á að spila: ○ Leikmenn fá jafn marga tappa hvor, t.d. 5-10. ○ Leikmenn skiptast á að gera. ○ Fjöldi leikmanna getur verið 2-4 eða fleiri. ○ Fyrsti leikmaðurinn setur tappa á leikborðsreit og kastar teningnum. Talan á teningnum segir til um hversu mörg atriði leikmaðurinn þarf að segja um myndina á reitnum. Til dæmis, ef leikmaður velur reitinn með skjaldböku og teningurinn sýnir 2, myndi leikmaðurinn fyrst segja „skjaldbaka“ og segja svo frá tveimur atriðum sem tengjast skjaldbökum: „Þær fara hægt og hafa hús á bakinu.“ ○ Leikurinn heldur áfram þar til allir leikmenn hafa notað alla tappana sína.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=