Orð eru ævintýri - hugmyndabanki fyrir grunnskóla - íslenska sem annað tungumál

| Orð eru ævintýri | Hugmyndabanki fyrir grunnskóla | 2893 | MMS 2024 | 95 til snjókarla eða snjóhús og kastað snjóboltum. Menn verða þó að gæta sín í frosti því þá getur myndast hálka á gangstéttunum. Kúri er hins vegar vel búinn því hann er með flugbeittar klær. Góða nótt Kúri er orðinn mjög þreyttur á kvöldin enda er hann búinn að þvælast víða og upplifa margt. En hann getur ekki farið að sofa alveg strax því það er mikill skarkali heima hjá honum. Foreldrarnir reyna að fá börnin til að setjast við matarborðið svo fjölskyldan geti borðað kvöldmatinn saman – en það gengur misvel. Síðan þarf að taka til eftir matinn með tilheyrandi diskaglamri. Því næst þurfa allir að þvo sér, bursta tennur og hátta sig. Kúri þvær sér líka um trýnið með annarri framloppunni og sleikir á sér feldinn. Að endingu er öll fjölskyldan orðin syfjuð, líkt og Kúri. Þá hefur kötturinn sem betur fer fundið uppáhalds risaeðluna sína og komið sér vel fyrir. Þegar búið er að lesa góða bók segja allir „góða nótt“! og Kúri svífur inn í draumaheima.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=