Númi og konurnar þrjár

7 Númi stöðvaði hjólið, leit við og glotti. Konurnar voru rennblautar og bálreiðar. Hann hafði aldrei séð svona reiðar konur. Númi varð hræddur. Fínu konurnar gengu hægt og rólega að Núma. Hann ætlaði að hjóla í burtu. En hann gat hvorki hreyft legg né lið. Voru þær göldróttar eða hvað? Ha, ha, sögðu konurnar. Þær hlógu rosalega hátt. Skrýtið hvað svona fínar konur geta hlegið asnalega, hugsaði Númi. Reiðu konurnar slógu hring um Núma. Þær horfðu á hann illum augum. Ó, ó, hugsaði Númi. Ég hefði ekki átt að skvetta á þær.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=