Númi og konurnar þrjár

22 Helga steig á brettið. Það rúllaði af stað. Núma leist ekkert á þetta. Hann hefði ekki átt að lána þeim brettið. Helga rann ótrúlega lengi áður en hún skall á tré sem óx upp úr gangstéttinni. Brettið rúllaði áfram og lenti undir bíl … og brotnaði. Stór, fín kona lá á stéttinni. Hún hafði fengið högg á höfuðið. Einhver hringdi í neyðarlínuna 112. Löggan kom. Sjúkrabíllinn kom. Ása grét. Signý í hjólastólnum grét. Allir sem sáu konuna á gangstéttinni grétu. Skyldi hún vera dáin? Númi grét ekki … hann var reiður. Brettið var ónýtt og hjólið líka.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=