Númi og konurnar þrjár

18 – Þetta er flott bretti, sögðu þær. Megum við fá það lánað? – Nei, nei, hrópaði Númi. Þið kunnið ekkert á bretti. Svo eigið þið ekki hlífar. Viljið þið líka lenda í hjólastól? – Hvernig hlífar þurfum við á hjólabretti? spurði Helga. Númi útskýrði það. – Aha, sagði Ása. Svo flýttu þær sér í burtu leyndardómsfullar á svip. Hvað eru þær nú að bralla? hugsaði Númi. Næsta dag óku konurnar aftur hjólastólnum í veg fyrir Núma. Númi flaug á hausinn. Hann skall í götuna. Hvað var eiginlega að þeim, hugsaði Númi. Hlífarnar björguðu honum aftur. Hann var búinn að fá nóg af þessum konum. – Heyrðu litli minn, sagði Ása. Lánaðu okkur nú brettið.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=