Númi og konurnar þrjár

16 Nokkru síðar þegar Númi var að renna sér á brettinu var hjólastól allt í einu ekið í veg fyrir hann. Númi flaug á hausinn. Hann meiddi sig ekki neitt. Hlífarnar björguðu honum. Þetta voru fínu konurnar þrjár. Signý var í hjólastólnum. Hún var eins og múmía. Læknarnir höfðu pakkað henni inn í sárabindi og plástra. – Ó, ó, ert þetta þú? sögðu Ása og Helga við Núma. Ef þú hefur meitt þig getum við bara kysst á meiddið. Þetta fannst Núma ekki fyndið. – Nei takk, sagði hann ákveðinn.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=