Norðurlönd - Vinnubók

19 NORÐURLÖND Ísland á korti Merktu eins marga staði og þú getur inn á kortið: a) Merktu höfuðborg Íslands og stærstu þéttbýlisstaði á landinu. b) Merktu stærstu jöklana. c) Merktu hvar þú býrð. d) Veldu þér eina stóra á og teiknaðu hana inn á kortið. e) Teiknaðu hringveginn í kringum Ísland. Teiknaðu líka hringveginn um Vestfirði. f) Veldu þér a.m.k. tvö fjöll og litaðu þau með brúnu inn á kortið. Skrifaðu nöfn þeirra og skráðu hvað þau eru há. g) Merktu tvo flóa, þrjá firði og þrjár víkur inn á kortið. h) Merktu þrjár eyjar inn á kortið. i) Merktu nú nokkra staði til viðbótar sem þú hefur komið á eða þér finnst áhugaverðir.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=