Neistar

46 Samtengingar Skoðaðu orðið samtengingar. Sam-tengingar . Tengja saman. Það er einmitt hlutverk samtenginga, að tengja saman orð, orðasambönd og setningar . Eins og í þessum texta: Kristófer beið heima en Palli og Jón fóru, annaðhvort vegna þess að hvorki Dagný né Lísbet höfðu yrt á þá allt kvöldið eða af því að veðrið hafði versnað smátt og smátt. Hér er sami texti án samtenginga: Kristófer beið heima Palli Jón fóru, Dagný Lísbet höfðu yrt á þá allt kvöldið veðrið hafði versnað smátt smátt. Áttar þú þig á því hvað samtengingar eru ómissandi? Samtengingar geta verið: eitt orð : og – eða – en – að – sem – enda o.fl. tvö orð : bæði og – hvorki né – annaðhvort eða o.fl . þrjú orð : af því að – vegna þess að o.fl. Hlutverk samtenginga er sem sagt að tengja saman orð og setn- ingar. En skiptir einhverju máli hvaða samtengingar við notum – hafa þær beina merkingu? Er munur á þessum tveimur setningum? Ef já, hver er hann? Eggert og Pétur koma í kvöld. Eggert eða Pétur kemur í kvöld. En þessum? Taktu bæði skíði og skauta með þér. Taktu annaðhvort skíði eða skauta með þér. Búðu til eins margar málsgreinar og þú getur með orðunum sjónvarp og tölva og notaðu mis- munandi samtengingar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=