Neistar

45 18. „Feitt“ skal breytt Hversu mörg lýsandi orð þekkir þú sem hafa fengið nýja eða öfuga merkingu, líkt og orðið feitt og ógeðslega? Veldu fimm af dæmunum í greininni og skrifaðu setningarnar upp með nýju og formlegra málsniði. Orðið er feitt Eitt af því sem einkennir slangur er hversu óstöðugt það er. Orð og orðasambönd komast í tísku og ná fjöldahylli á undraskömmum tíma en víkja síðan jafnharðan fyrir nýrri tísku. Stundum eru tískuorðin fengin að láni úr öðrum málum, oftast ensku, sum eru innlend nýsköpun og einnig er algengt að alþekkt íslensk orð séu notuð á annan hátt en tíðkast hefur. Það síðastnefnda á við um notkun orðmyndarinnar feitt í slangri. Orðmyndin feitt telst vera hvorugkyn lýsingarorðsins feitur , eins og flestir vita, en það ágæta lýsingarorð er algengt í ýmsum merkingum, talað er um feitan mat (ekki síst kjöt), feitt fólk og feit dýr , feitt letur og jafnvel feit embætti . Í slangri bregður hinsvegar svo við að feitt er orðið að atviksorði, eins og m.a. sést á því að það er gjarnan notað með sögnum. Það er ekki síst í orðasambandinu að rokka feitt sem þessi notkun birtist. Þetta orðalag er ekki einungis haft um rokkhljómsveitir og rokktónlist eins og ætla mætti, heldur felst í því almennt hrós sem getur átt við nánast hvað sem er. Eftirfarandi dæmi eru sótt á bloggsíður netsins: Amma mín er snilld, hún rokkar feitt, hún er besta kelling í heimi Þessi bloggsíða rokkar feitt Það rokkar feitt að missa af menningarnótt Nokkur önnur orðasambönd með atviksorðinu feitt eru algeng í slangri, t.a.m. að sökka feitt , sem er álíka neikvætt og það er jákvætt að rokka feitt, Atviksorðið feitt kemur þó fyrir í mun fjölskrúðugra samhengi. Það virðist notað í e.k. herðandi merkingu (svipað og mjög , ofsalega , ofl.) í margvíslegum samböndum: Ég var allavegana feitt að fíla mig. Ég er að spekúlera í að vera feitt dugleg í jólafríinu. Ég væri feitt til í að sjá Queen á sviði. Það snjóaði feitt 29. des. Einhver var að græða feitt á þessu balli. Við urðum feitt pirraðar. Þá er þess að geta að lýsingarorðið feitur í merkingunni 'góður, frábær' kemur einnig fyrir í íslensku slangri, eins sést á eftirfarandi dæmum (af netinu): Mér finnst bloggið mitt vera feitt. Hann …er kominn með feitt comeback í blogginu. Þar fara saman fegurstu ballöður, frábærar raddsetningar og feitt rokk. Snarpur fundur og feitt party. Það má kallast kostuleg þverstæða að lýsingarorðinu feitur (og samsvarandi atviksorði) skuli hafa hlotnast svona jákvæð merking í slangri, á tímum þegar hverskyns fita er heldur illa þokkuð – að vera feitur er víst ekki meðal þess sem „rokkar feitt“ að dómi slangurmæltra unglinga. Aðalsteinn Eyþórsson – af vef Árnastofnunar

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=