Neistar

14. Mikilvægasta veganestið Fyrri hluti – einstaklingsverkefni unnið heima Spurðu foreldra þína eða einhverja aðra fullorðna hvað þeim finnst mikilvægast að kenna þér og að þú tileinkir þér í lífinu og fáðu þá til að segja þér af hverju. Punktaðu þetta niður hjá þér. Seinni hluti – hópverkefni í skólanum Vinnið fjögur saman. Safnið saman upplýsingun- um sem þið komuð með að heiman og setjið saman lista yfir mikilvægasta veganestið og ástæður fyrir því. Hvað? Af hverju? Ræðið þau atriði sem fram koma í hópnum. Er einhver regla eða einhver gildi sem komu fram hjá fleiri en einum? Hver þessara atriða finnst ykkur mikilvægust og af hverju? En hvað finnst ykkur skipta minnstu máli? Af hverju? Eruð þið öll sammála eða greinir ykkur á? Hver þessara atriða mynduð þið vilja kenna börnum ykkar og af hverju?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=