Neistar

Neisti – Að sitja á sér Stundum er nóg að byrja á byrjuninni. Þessar myndir geta (ef þú leyfir) kallað fram fjölmörg ólík sögusvið og enn fleiri persónur úr sögunum. Leyfðu þér að fara á flug og skrifaðu smásögu út frá einni myndanna þar sem myndin er lýsandi fyrir sögusviðið. Hér eru fleiri hugmyndir að smásögum – kíktu á þær! • Ímyndaðu þér að í einn dag byggir þú yfir ómældri dirfsku og hugrekki. Hvernig myndir þú eyða deginum? • Ímyndaðu þér að heimurinn væri án rafmagns í heilan sólarhring. Hvernig myndir þú eyða deginum? • Ímyndaðu þér að einu sinni á ári gætirðu breytt þér í hvaða lifandi veru sem er. Hvaða veru myndir þú velja og hvað myndir þú gera? • Það besta í lífi mínu er … • Það erfiðasta sem ég hef þurft að gera er … 135 Þúsund sögusvið og fleiri hugmyndir …

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=