Mörkin horfin

6 Bók eða bolti Silja: Úff, það er svo erfitt að fletta. Jóna: Hvað ertu að lesa? Silja: Ráðagóðu stelpuna. Jóna: Er þér ekki kalt? Silja: Alveg ferlega en ég má ekki vera inni. Jóna: Mér finnst það svo asnalegt. Silja: Mér líka. Það eru allir reiðir af því að mörkin eru horfin. En svo gerir ekkert til þó að sá sem les krókni úr kulda. Jóna: En það er samt fúlt að þjófarnir skuli stela frá okkur. Silja: Ég vona bara að þeir steli ekki bókunum á bókasafninu. Jóna: Ég held að bjalla fari í gang ef einhver brýst inn í skólann. Silja: Gott. Eigum við að hlaupa svolítið?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=