Mörkin horfin

4 Leit að sporum Tómas: Af hverju varst þú að lemja Eyþór? Jonni: Hann sparkaði í mig, þetta fífl. Tómas: Af hverju sparkaði hann í þig? Jonni: Hann var fyrir mér svo að ég ýtti honum frá. Þá varð hann brjálaður. Tómas: Þú áttir að hlaupa framhjá honum. Jonni: Ég var að flýta mér. Það er búið að stela mörkunum. Ég er með stækkunargler til að leita að sporum. Tómas: Vá, ertu búinn að finna eitthvað? Jonni: Nei, ég var rétt að byrja þegar þú fórst að trufla mig. Tómas: Þú áttir samt ekki að hrinda Eyþóri. Jonni: Hann bara datt á hausinn. Svo sparkaði hann í mig. Ég fékk mar á fótinn. Tómas: Þú byrjaðir.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=