Mörkin horfin

2 Mörkin horfin Jonni: Alli, Alli! Komdu og sjáðu! Alli: Ég er að koma. Hildur: Hvar eru fótboltamörkin? Alli: Mörkin? Já, hvar eru mörkin? Jonni: Það eru engin mörk! Alli: En þau voru hérna fyrir jól. Hildur: Þeim hefur verið stolið í fríinu. Alli: Oh, og við eigum völlinn í dag. Jonni: Sjáið þið? Þjófarnir hafa ekkert skemmt. Hildur: Nei, þeir bara tóku þau. Alli: Við verðum að búa til fótboltamörk. Hildur: Við verðum að finna þjófana. Alli: En við eigum völlinn í dag! Hildur: Strákar, strákar, sjáið þið. Körfurnar eru líka horfnar!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=