Mörkin horfin

20 Sámur blundar Hildur: Af hverju er Sámur í kerru? Alli: Hann má ekki vera þreyttur þegar hann fer að elta þjófana. Jóna: Hvaða þjófa? Hildur: Þegiðu og farðu heim ef þú þarft alltaf að láta svona! Alli taktu hann upp úr kerrunni. Hann á að leita. Alli: Komdu Sámur minn, komdu. Æ, hann er sofnaður. Hildur: Vektu hann þá! Jóna: Sérðu ekki hvað hann er þreyttur? Alli: Hann hefur kannski gott af því að sofa í smástund áður en hann fer að hlaupa. Hildur: Rekjum spor á meðan. Jóna: Ég ætla að passa Sám. Alli: Ertu með vasaljós?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=