Mörkin horfin

12 Masað í matsalnum Jóna: Oj bara fiskur! Við fengum kjöt allt jólafríið. Alli: Við líka. Og Loki át yfir sig. Hann varð alveg fárveikur. Jóna: Mikið áttu gott að eiga hund. Alli: Hann er frábær, bara að verða dálítið gamall. Hildur: Finnur hann lykt? Alli: Það held ég. Hann þefar af öllum sem koma heim. Hildur: Spennandi að vita hvort hann finnur þjófana. Jóna: Það eru engir þjófar. Hildur: Hvar eru þá mörkin? Jóna: Inga kennari segir að þeim hafi ekki verið stolið. Alli: Eins og hún viti eitthvað um það, nennir aldrei í fótbolta.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=