Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar

7 MANNSLÍKAMINN Frumuhimna Frumuhimnan umlykur frumuna. Hún verndar innihald frumunnar og er tengiliður hennar við umhverfið. Himnan hleypir inn efnum sem fruman þarf á að halda og losar frumuna við það sem hún þarf að losna við. Umfrymi Umfrymið er seigfljótandi vökvi sem er gerður meðal annars úr vatni, steinefnum og prótínum. Hvatberi Fruman þarf orku til þess að geta lifað. Í frumunni eru því sérstök orkuver þar sem bruninn fer fram. Orkuverin kallast hvatberar. Frumukjarni Frumukjarninn stýrir langflestum störfum frumunnar og hann er því stjórnstöð hennar. Þar er erfðaefnið. Það ákvarðar hvaða efni fruman býr til og hvernig hún starfar. Prótínverksmiðjur Erfðaefnið í frumukjarnanum gefur fyrirmæli til„verksmiðja“ frumunnar um að framleiða ýmiss konar prótín. Prótínin gegna margvíslegum hlutverkum og eru meðal annars byggingarefni í frumunum. Prótínverksmiðjurnar kallast netkorn (ríbósóm) og eru hér í frymisnetinu. Leysikorn Leysikornin eru nokkurs konar hreinsistöðvar frumunnar. Í leysikornunum er tekið við úrgangsefnum frumunnar sem er síðan veitt út úr henni.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=