Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar
42 BLÓÐRÁSIN Hjartað er tvöföld dæla Hjartað situr milli lungnanna, eilítið vinstra megin við miðju í brjóstkassanum. Ef þú leggur höndina þar yfir geturðu fundið fyrir hjartslættinum. Á hverju ári slær hjartað yfir 30 milljón sinnum og dælir á þeim tíma að minnsta kosti tveimur millj ónum lítra af blóði. Þrátt fyrir það er þessi ótrúlegi vöðvi ekki stærri en krepptur hnefi þinn. Hjartað er holur vöðvi með fjórum hólfum – tveimur gáttum og tveimur hvolfum (sleglum). Hægri helmingurinn skiptist í hægri gátt og hægra hvolf. Frá þessum helmingi er súrefnissnauðu blóði dælt til lungnanna um litlu hringrásina. Í vinstri helm ingnum eru vinstri gátt og vinstra hvolf. Súrefnisríkt blóð kemur inn frá lungum og því er svo dælt út til alls líkamans um stóru hringrásina. Hjartað er því í reynd tvær dælur sem báðar starfa samtímis. Þegar hjartað er í hvíld streymir blóðið úr gátt unum og niður í hvolfin. Lokurnar í ósæð og lungnaslagæðinni, slag æðalokurnar, varna því að blóðið renni til baka úr þessum stóru æðum og niður í hjartað aftur. Hvolfin dragast saman samtímis og dæla blóðinu út í slagæðarnar. Hjartalokur milli gátta og hvolfa leggjast aftur og varna því að blóðið fari aftur upp í gáttirnar. Lokur varna því að blóðið streymi í ranga átt Hægra og vinstra hvolf dragast saman samtímis og dæla blóði inn í lungnaslagæðina og ósæðina. Til að koma í veg fyrir að blóðið renni aftur upp í gáttirnar eru sérstakar lokur milli gátta og hvolfa. Þær nefn ast hjartalokur og þær lokast þegar hvolfin dragast saman og dæla blóðinu út í slagæðarnar. Milli hvolfanna og stóru slagæðanna, sem liggja frá þeim, eru líka sérstakar lokur sem kallast slagæða lokur . Þær opnast þegar blóðinu er dælt út úr hvolf unum og lokast þegar þau hvílast og fyllast nýju blóði sem kemur úr gáttunum. Ef hlustað er á hjartað með hlustpípu má heyra þegar lokurnar skella aftur á mismunandi tíma. Holæð Ósæð Holæð Hjartalokur Hægri gátt Vinstri gátt Vinstra hvolf Hægra hvolf Lungnabláæðar frá lungum Slagæðalokur Lungnaslagæðar til lungna
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=