Mannslíkaminn - Litróf náttúrunnar
115 SEX OCH SAMLEVNAD 4 Í sumum fjölskyldum þykir það mikil vægt að stelpur stundi ekki kynlíf áður en þær gifta sig. Stelpur geta fengið á sig illt orð ef þær hafa sofið hjá mjög ungar eða ef þær hafa sofið hjá mörg um. Er hætta á að orðspor stráka versni jafn mikið ef þeir sofa hjá mörgum eða líta sumir á þá sem karlmenni og kvennagull? Hvað finnst þér um þetta? 5 Lítur þú tvær stelpur, sem dansa saman, sömu augum og tvo stráka sem gera það? Færðu rök fyrir svarinu. 6 Hafa strákar sömu möguleika á að sauma eigin föt og stelpur og hafa stelpur sama möguleika á að stunda hnefaleika og strákar? Færðu rök fyrir svarinu. 7 Hvað merkja þessi orð í þínum huga: kvenlegt, karlmannlegt og mann legt? Þessi dæmi vísa mörg til óþarfrar mismununar. Við getum sjálf aukið jafnrétti kynjanna með því að líta á hvern einstak ling sem manneskju sem býr yfir mörgum eiginleikum og hefur sama rétt án tillits til þess af hvaða kyni manneskjan er eða hvaða kynhneigð hún hefur.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=