Maðurinn hugur og heilsa

88 segja nei 1. Nei, mig langar ekki til þess. 2. Ertu eitthvað verri? Heldurðu að ég fái vasapeninga ef ég kem heim lyktandi af áfengi og tóbaksreyk? 3. Nei, mér líður vel án þess. 4. Foreldar mínir mundu ganga af göflunum, það líst mér ekki á. 5. Kemur ekki til greina! Pabbi og mamma hafa lofað mér að borga fyrir ökukennslu ef ég held mig frá því. Gerirðu þér ekki grein fyrir hvað það kostar að fá bílpróf? 6. Ef þú sæir hvað þið lítið hallærislega út, hefðir þú ekki heldur byrjað. 7. Nei, það vil ég ekki. Ég ætla mér að stunda íþróttir, tóbak og áfengi spilla bara fyrir árangri. 8. Uss, drukkið fólk verður sér bara til skammar. Það vil ég ekki. 9. Nei, ég lofaði að koma snemma heim. Það fyndist á lyktinni ef ég hefði reynt það. Þú getur ekki ímyndað þér hversu lyktnæmt fólk er heima hjá mér! 10. Nei, ekki í dag. 11. Þakka þér fyrir, ég reyki ekki. 12. Ég þarf að vakna snemma á morgun og verð að vera hress. 13. Ég drekk ekki. 14. Hvað um það að aðrir geri það? Einmitt þess vegna ætla ég að halda mig frá því. Ég kann vel við að skera mig úr. 15. Brennivín? Nei, þakka þér fyrir. Mér finnst gos miklu betra. 16. Ertu ekki læs? Það stendur þarna á pakkanum að reykingar drepi. 17. Nei takk! 18. Það er óþarfi. Ég skemmti mér ágætlega án þess. 19. Ég held nú síður! Mér finnst ekkert sniðugt að lykta andstyggilega. 20. Nei. Svo vitlaus er ég ekki! 20 aðferðir t i l að

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=