Maðurinn hugur og heilsa

6 Að verða stór Einu sinni varstu ekki stærri en punkturinn á eftir þessari málsgrein. En án þess að nokkur segði líkama þínum fyrir verkum fór hann að stækka og þroskast. Og það á enn eftir að halda áfram. „Heyrið þið, reynið þið nú að stilla ykkur! Ég veit að það er langt um liðið síðan þið hittust öll síðast, en nú verðið þið að snúa ykkur að náminu.“ Andrés kennari er glaður í bragði og sólbrúnn, þar sem hann stendur framan við skólatöfluna. Nokkur tími er síðan hann stóð þar síðast, ekki bara sumarleyfið. Þar á undan var hann í feðraorlofi með nýfæddum syni sínum, Emil.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=