Maðurinn hugur og heilsa

40 Matur og heilsa Líkami þinn er gerður úr því sem þú borðar. Þess vegna er mikilvægt að borða hollan mat og mátulega mikið af honum. Þú vilt væntanlega að líkami þinn starfi eðlilega? Loksins hádegishlé! Samír og Eiríkur hlaupa hvor í kapp við annan í átt að matsal skólans. Þegar inn er komið mætir þeim ilmurinn af nýbökuðum pönnukökum. Samír kann sér ekki læti og hrópar: „Pönnukökur! Uppáhaldsmaturinn minn!“ Eiríkur er ekki jafnhrifinn. Hann sér ekkert sérstakt við pönnukökur. Þær eru lítið annað en hveiti og sykur og bragðið eftir því. Eiríkur andvarpar: „Þú mátt fá minn skammt af pönnukökunum. Ég ætla að láta salatið duga í dag.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=