Lygasaga

Allt í einu fellur dósapokinn á hliðina með miklum skarkala. Tómar dósir rúlla í allar áttir. Drengurinn hrekkur við. Hann lítur flóttalega í átt til dyranna. Fjölin losnar alveg og skellur til hliðar. Bakpokinn dettur í gólfið og úr honum velta nokkrir farsímar, snúruflækja, tvær myndavélar og veski. Gapandi op í gólfinu blasir við. Leynihólf. Strákurinn kemur auga á köttinn. – Komdu þér út, ófétið þitt, urrar hann milli skakkra tanna. Hann lyftir kúbeininu og stígur í átt til kattarins. Sá svarti setur upp kryppu og stekkur út á gólf. Hann grípur snúruflækju í kjaftinn og hverfur út í myrkrið. 6

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=