Lygasaga

Saga kippist við. Hún kannast eitthvað við þessi orð og málróminn. – Ég kem honum í réttar hendur, segir húsvörðurinn ákveðinn. Þá heyrast allt í einu smellir í háum hælum. Skólastjórinn kemur hlaupandi og heldur við kórónu á höfðinu. – Hvaða hávaði er þetta? Ráðhildur snýr sér að húsverðinum. – Úlfur, hvað er í gangi? – Úlfur. Heitir þú Úlfur? æpir Saga og bendir á húsvörðinn. Þú stendur á bak við öll innbrotin. Eyrun á húsverðinum verða eldrauð. 53

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=