Lygasaga

– Hver fjárinn. Hvað ert þú að gera hér? Hann grípur í öxlina á Sögu. – Úlfurinn var að brjótast inn, stamar hún og rífur sig lausa. Hann ætlaði að breyta vagninum í kind og stela tölvunum. – Eins og einhver trúi þér, segir húsvörðurinn. Komdu þér burt. Steinn dregur úlfinn fram á ganginn. – Eins og hann viti ekki allt um það, hreytir drengurinn út úr sér. – Vertu bara til friðs, titturinn þinn. Annars … segir húsvörðurinn og slítur grímuna af stráknum. 52

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=