Lygasaga

Saga stingur lyklinum í skrána. Hann smellpassar. Hún snýr honum og dyrnar opnast. Það mætir þeim skrítin sjón. Drengur með úlfagrímu er kominn hálfa leið inn um lítinn glugga. Hann brýst um en virðist vera fastur. Á gólfinu fyrir neðan hann er hvít gæra í hrúgu. Ofan á gærunni liggur kindagríma. Upp við vegginn er vagn með tölvum skólans. – Saga, náðu í skólastjórann. Ég passa að úlfurinn sleppi ekki. 50

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=