Lygasaga

– Saga, ert þetta þú? kallar Steinn. – Forðaðu þér, heyrist hrópað og síðan er öskrað. Steinn reynir að koma sér undan en dettur um froskalappirnar. Hurðin brestur. Saga fellur út úr skúrnum með kúbeinið á lofti. Þau liggja á jörðinni fyrir utan skúrinn. – Hvað gerðist? spyr Steinn og hjálpar Sögu á fætur. – Úlfurinn byrgði fyrir gluggann og læsti mig inni. Ég veit að þú trúir mér ekki en þetta er alveg satt, svarar Saga áköf og bendir á gluggann. – Ég trúi þér, segir Steinn. Ég sá hann. Hann læddist út úr sundinu og hélt í átt til skólans. Fyrirgefðu. Þú sagðir satt. Ég tók mynd af sporinu. Steinn réttir Sögu dagbókina. 46

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=