Lygasaga

Í ÚLFAGRENI Krakkar í litríkum búningum koma á móti Steini. Þeir halda í átt til skólans en Steinn ætlar að finna Sögu. Hann sér dreng í úlfabúningi læðast út úr húsasundi. Úlfurinn er með eitthvað hvítt í fanginu sem líkist kind og hann hraðar sér í átt að skólanum. Fyrir innan sundið er illa hirtur garður og ruslatunna stendur upp við vegg á skúr. – Skúrinn, hvíslar Steinn og gengur að honum. Á hurð skúrsins blasir svart sporið við. Hann dregur fram myndavélina sína og tekur mynd. 44

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=