Lygasaga

– Nei, hún fór á ballið í skólanum. Vildi samt ekki vera í búningi. Ólíkt henni. Þú getur hitt á hana í skólanum. – Ha, já, örugglega, muldrar Steinn. – Af hverju ert þú ekki í búningi? spyr mamma Sögu. En hún er farin að lesa blaðið áður en Steinn nær að benda henni á froskalappir á fótum sér. Steinn les framan á blaðinu: Enn og aftur brotist inn ... Mamma Sögu kippir blaðinu skyndilega frá þegar svartur köttur kemur stökkvandi með eitthvað í kjaftinum. – Krummi, hvað er þetta? Derhúfan hennar Sögu. Þú ert nú meiri þjófurinn. Hún tekur húfuna, lítur hissa á fætur Steins en lokar síðan dyrunum. 41

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=