Lygasaga

SJÓN ER SÖGU RÍKARI Saga lemur á útihurðina heima hjá Steini með krepptum hnefum. Dyrnar opnast. Steinn kíkir út og tekur mynd. Saga hrekkur við. – Fyrirgefðu, ég gat ekki stillt mig, segir Steinn og glottir. – Sæll, segir Saga. Ertu til í að hjálpa mér? – Hvernig þá? spyr Steinn. – Ég veit hverjir eru að fremja öll ránin. – Hvað áttu við? – Það er þjófagengi. Úlfar. – Nei, hættu nú alveg. Síðast var það krummi sem stal síma og nú eru úlfar að brjótast inn. Ætlastu virkilega til að ég trúi þér? 32

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=