Lygasaga

– Maður veit aldrei, svarar löggan þreytulega. – Nei, maður veit aldrei, muldrar sá skeggjaði. – Afsakið, segir Saga. Vitið þið nokkuð hvenær sporið kom á vegginn við dyrnar? Maðurinn lítur á Sögu. – Það kom í gær. Bölvaðir sóðarnir. – Áttu við að þetta sé nýkomið? spyr löggan. – Já. Skiptir það einhverju máli? segir maðurinn. – Maður veit ekki, segir löggan. – Nei, maður veit ekki, segir sá skeggjaði. Saga er hins vegar viss um að þetta skipti mjög miklu máli. Það trúir mér enginn hugsar hún og strunsar út. Ég verð að geta sannað það. 30

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=