Lygasaga

– Við munum skoða málið, segir skólastjórinn og strýkur af símanum sínum. Saga tínir dót sitt af borðinu og dregur derhúfuna niður fyrir augun. – Þú færð ekki að taka þátt í öskudagsballinu á morgun. Svo mikið er víst, tilkynnir skólastjórinn og opnar dyrnar. Komdu þér heim. Það stara allir á Sögu. Steinn stendur álengdar með myndavélina en hann lætur hana síga. Saga lítur undan. Hún gengur niðurlút út ganginn. Síðan heyrir hún hvíslað – LYGASAGA. 28

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=