Lygasaga

Skyndilega þagna allir. Húsvörðurinn kemur móður og másandi. – Hvað er hér um að vera? Komið ykkur í tíma, segir hann hvasst og lítur á töfluna. Hann nemur snögglega staðar. Eyrun á honum verða eldrauð. Krakkarnir færa sig frá en fölleitur strákur með skakkar tennur hlær enn. Húsvörðurinn rífur greinina af töflunni og krumpar hana saman. Rétt í því birtist Ráðhildur skólastjóri. Hún ýtir á undan sér vagni með nokkrum tölvum á. – Hvað er í gangi hér? Af hverju eruð þið ekki í tíma? segir Ráðhildur. Krakkarnir þegja og Ráðhildur snýr sér að húsverðinum. – Hvað á þetta að þýða? Hún réttir fram höndina. Húsvörðurinn lætur hana hafa krumpað blaðið. 23

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=