Lygasaga

Saga staldrar við hjá húsasundi. Þar er búið að úða á veggina og teikna nokkra risastóra stafi. Hún leitar að sporinu en finnur það ekki. Allt í einu er mjálmað við fætur hennar. – Krummi, ert þú hér? Hvað ertu nú með? Kötturinn strýkst við fætur hennar. Hún tekur hann í fangið og dregur band úr kjaftinum á honum. Í bandinu hangir lykill og spjald með tölunni 66. Saga sleppir Krumma og veltir lyklinum milli handa sér. Hún kíkir inn fyrir húsasundið. Þar er illa hirtur garður, ruslatunna og gamall skúr. Það mótar fyrir einhverju svörtu á hurðinni. 18

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=